154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:22]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Spurningin er: Telur hv. þingmaður að hægt sé að verja dýravelferð og reka lagareldi? Þá er svarið já. Það er kannski að mörgu leyti vandkvæðum bundið, sérstaklega í sjókvíaeldinu, betri leiðir til þess í landeldinu þar sem laxalús er ekki viðvarandi vandamál. Þetta er auðvitað alltaf flókið hagsmunamat sem fer fram. Ég held að þegar kemur að sjókvíaeldinu þá sé þetta ágætisnálgun eins og kannski birtist í raun áður en þetta frumvarp kom fram, í þeirri lagareldisstefnu sem var samþykkt hér í fyrra og fjallaði um að innleiða svona „zero tolerance“-stefnu, svo ég sletti, gagnvart þessu, gagnvart slysasleppingum og öðru og eins þegar kemur að laxalús. Ég ætla ekkert að neita því að það er alls konar viðbjóður í þessu sem þarf að taka á með ráðum og dáð. Það er áskorun og þetta eru vandamál sem þarf að leysa og það eru engar töfralausnir á þeim. En ég ætla alla vega ekki að standa hér og tala fyrir því að það þurfi að loka þessu öllu vegna náttúruverndar og dýravelferðarsjónarmiða, það stríðir gegn minni sannfæringu.