154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:24]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er rosalega gott að fá þessi sjónarmið upp á yfirborðið og eiga þetta samtal um þau í þingsal því að þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Ég hjó sérstaklega eftir orðum hv. þingmanns í ræðunni um að ein af meginástæðunum fyrir því að hann styður fiskeldi í sjókvíum er að hann telur það vera algerlega nauðsynlegt til að brauðfæða heiminn. Mig langar til að spyrja hv. þingmann út í þetta. Til þess að framleiða eina máltíð af sjókvíaeldislaxi þarf prótín og næringarefni sem myndi duga í þrjár til fjórar máltíðir fyrir fólk. Lax er lúxusvara. Þetta er ekki eitthvað sem hver sem er getur borðað eða hefur aðgang að. Eldislax er gríðarlega lítill hluti, ég held í kringum 4 eða 5%, af því sjávarfangi sem er framleitt á hverju ári í heiminum. Það kemur fram í grein sem Jón Kaldal skrifar sem mig langar til að lesa úr, með leyfi forseta:

„Uppistaðan í fóðri sjókvíaeldislaxins er sojaprótein. Sojabaunirnar eru ræktaðar á ökrum í Suður-Ameríku og fluttar þaðan til Evrópu. Þar er búið til úr þeim fóður sem er svo hellt í Norður-Atlantshafið í allt að tvö ár. Megnið endar sem botnmengun í fjörðum, áður en laxinum er slátrað og flogið með hann á markað í Bandaríkjunum eða Evrópu. Þetta er hvorki „sjálfbær“ né „umhverfisvæn“ aðferð við að framleiða matvæli.“

Höfum í huga að lax er lúxusvara þannig að ég stoppa dálítið við þessi orð hv. þingmanni, að þetta sé nauðsynlegt til að brauðfæða heiminn. Mig langar til að spyrja aðeins út í það, í ljósi þessara upplýsinga: Væri ekki skilvirkara og í raun umhverfisvænna og sjálfbærara að brauðfæða heiminn öðruvísi en með laxi sem fáir nema í vestrænum ríkjum hafa efni á að kaupa?