lagareldi.
Virðulegur forseti. Lagareldi er auðvitað alls konar, ekki bara lax. Stór hluti af sjávarfangi er einmitt framleiddur úr lagareldi. Þetta er auðvitað ekki einhver töfralausn á því að brauðfæða heiminn, þetta er ekki það eina sem við gerum til að brauðfæða heiminn. En við sjáum á undanförnum árum að eftirspurn eftir fiski og eftir fiskprótíni er að aukast alveg gríðarlega, m.a. eftir því sem millistéttin stækkar í hverju landinu á fætur öðru í heiminum. Ég held að það sé skynsamlegt fyrir Íslendinga að halda áfram á þeirri braut að byggja upp þá atvinnugrein sem lagareldi er. Það eru auðvitað miklu meiri vandamál og miklu stærri áskoranir í sjókvíaeldinu heldur en t.d. þegar kemur að landeldinu. Landeldi kallar t.d. á aukna orkuöflun þannig að þeir sem tala fyrir því að það þurfi einhvern veginn að fara með þetta allt upp á land og gera það þar verða þá líka að svara því hvaðan orkan á að koma. En ég stend alveg við það að ég held að við eigum ekki að skila auðu þegar kemur að lagareldi og þessari framleiðslu. Þetta skapar miklar útflutningstekjur og mörg góð störf, miklar skatttekjur og ég held að við eigum að leita allra leiða til að gera þetta í sátt við náttúruna og umhverfið og án þess að ganga á líffræðilegan fjölbreytileika. Það er verkefnið.