154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég vil byrja á að gera grein fyrir breytingartillögu sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson lagði fram en hann er í öðrum erindagjörðum á vegum þingsins. Breytingartillagan er þannig:

„7. gr. orðist svo: Til verndar villtum laxi er eldi laxfiska í sjókvíum óheimil við strendur landsins.“

Varatillaga:

7. gr. orðist svo: Til verndar villtum laxi er eldi laxfiska í opnum sjókvíum óheimil við strendur landsins.“

Þessi tillaga fylgir dálítið því hvað fræðimenn segja okkur. Þegar við vorum að glíma við þau lög sem runnu í gegnum þingið á einum degi 2018 til þess að redda því að umhverfismat bannaði þetta, redda því með lagasetningu, þá komu fræðimenn í röðum fyrir nefndir þingsins og útskýrðu fyrir okkur hvernig hægt væri að vera með virkt rauntímaeftirlit sem myndi geta komið í veg fyrir allan þann skaða, sem hefur gerst síðan. Takið eftir þessu, sem hefur gerst síðan. Vandinn er nefnilega að eftirlitið var ekki til staðar. Það eftirlit sem fræðimenn sögðu að þyrfti að vera til staðar til þess að þetta gengi upp hefur ekki verið til staðar. Eina ályktunin sem ég get dregið af því — af því að ákallið var til staðar, það vildu allir þetta eftirlit en það gerðist samt ekki — er að við getum einfaldlega ekki sinnt þessu eftirliti. Þó að það sé yfirlýstur vilji þá er ekki raunverulegur vilji til að sinna því. Með þessu rauntímaeftirliti væri hægt að sjá strax þegar bregður út af með eitthvað, þegar mengun gæti farið að raungerast, þegar göt fara að myndast. Þá væri hægt að koma í veg fyrir þetta allt. En það gerist ekki. Þess vegna erum við að leggja fram þessa breytingartillögu. Fyrst fólk getur ekki sinnt því sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir umhverfisslys þá verðum við bara að setja loku fyrir það, því miður. Þetta snýst ekki um það að skella bara í lás á morgun eftir að búið er að samþykkja þetta, það verður að klára ýmis leyfi til að koma í veg fyrir skaðabótaskyldu o.s.frv., en það þarf jafnvægi þarna á milli þegar allt kemur til alls.

Þegar ég horfi á það hvernig saga þessa máls hefur verið þá virðist einfaldlega vera svo að græðgin hefur hlaupið með fólk út í einhverja vitleysu. Þetta er svo gríðarlega mikilvægt til að bjarga byggðum landsins þrátt fyrir að það sé fullt af öðrum lausnum til í staðinn. En þetta er bara það sem er í boði. Það er aldrei tími til að hugsa um neitt annað eða reyna að gera eitthvað annað, leggja út í áætlanir, skipulag og stuðning, heldur gildir bara þetta klassíska hvalrekahagkerfi hér á Íslandi. Við stökkvum á þetta og veiðum alla síldina, klárum þetta bara. Ef við förum út í bankana þá gerum við þá enn þá meiri og stærri en allt annað. Ferðamennirnir, við bara hrúgum eins mörgum hérna og við getum þótt innviðirnir þoli það ekki. Þetta er klassíska íslenska leiðin, bara ana út í allt af því að við sjáum ekkert nema krónumerki í augunum. Það blindar okkur algjörlega gagnvart skaðanum sem þetta getur valdið og hefur valdið og sérstaklega í þessari grein einmitt af því að allt sem átti að vera hægt að gera og þurfti að gera var ekki gert. Þingheimur hefur hafnað því að auka fjárheimildir til eftirlitsaðila til að geta sinnt þessu eftirliti sem allir voru sammála um að þyrfti og væri nauðsynlegt. Auðvitað viljum við eftirlit. Við viljum ekki umhverfisslys. Allt í lagi, það kostar þetta. Nei — það er atkvæðið úr stólum þingmanna.

Við verðum því að horfa á þetta raunsætt, þegar allt kemur til alls. Orð á blaði og hvað er raunverulega á borði. Hver er lokaniðurstaðan þegar allt kemur til alls? Á bak við þetta mál, sérstaklega eftir nýlegar breytingar á því, milli þeirrar útgáfu sem var í samráðsgáttinni og þeirrar sem nú er komin fyrir þingið, liggja óhjákvæmilega þessar stjórnarskrárbreytingar sem hafa verið ræddar ítrekað um auðlindamálin, um auðlindaákvæði í stjórnarskrá. En einhverra hluta vegna þá rúllum við af stað og önum út í hlutina án þess að vinna þá vel. Eins og ég sagði, síðast þegar redda þurfti málum fóru lög hér í gegn á einum degi. Það hefur svo sem gerst nokkrum sinnum á þeim tveimur kjörtímabilum sem þessi ríkisstjórn hefur setið og svo sem áður líka. Þegar það þarf að redda sérhagsmununum þá er því bara kippt í liðinn, ekkert mál. En þegar það þarf að gera hlutina vel þá er það rosalega erfitt. Þá er engin sátt. Nei, við getum ekki pælt í því. Æ, það er svo mikið vandamál, þá þarf svona heildarendurskoðun. Getum við ekki bara lagað smá? Svo þegar heildarendurskoðun er til þá er sagt: Nei, þetta er allt of stórt og mikið og umfangsmikið og við getum ekki rætt þetta allt hér á þingi, við náum aldrei að klára það. Getum við ekki gert smábreytingar?

Það er ekki hægt að halda og sleppa í þessu. Við erum með plagg um allsherjarbreytingu á stjórnarskránni. Það er ekki til umræðu. Það hafa komið nokkur önnur minni mál í staðinn en allar þær tilraunir stoppa einmitt á auðlindaákvæðinu og þeirri útfærslu sem alltaf er verið að leggja til hvað auðlindaákvæðið varðar. Það er einfaldlega ekki verið að hlusta á almannahagsmuni í því máli. Það gæti ekki verið augljósara fyrir hvern sem vill skoða það. Við vorum með málamiðlun þegar þetta var lagt fram á síðasta kjörtímabili, þegar þáverandi hæstv. forsætisráðherra lagði fram auðlindaákvæði sitt um eðlilegt verð á úthlutun auðlinda, að það ætti að vera eitthvað svoleiðis.

Rökræðan hefur dálítið verið um þetta, þ.e. eðlilegt verð og fullt verð. Við í Pírötum komum með tillögu: Af hverju ekki hvort tveggja? Af hverju ekki, þegar það á að nýta auðlindina til arðsemi, til að þriðji aðili geti í raun grætt á sameiginlegri auðlind, að nota fullt verð, þá þurfi útboð eða eitthvað því um líkt? En alla jafna þegar verið er að nýta auðlindir í almannaeigu, t.d. hitaveitu eða eitthvað svoleiðis, til opinberra framkvæmda eða eitthvað þess háttar, þá þurfi ekkert að fara í útboð eða neitt svoleiðis, þá er bara eðlilegt verð. Það er hægt að útfæra það á alla vegu. En bara að það sé rosalega skýrt að þegar einhver annar á að fara að græða á þessu þá þurfi að fara í útboð, fá fullt markaðsverð til þess að tryggja rétt og arð almennings af sinni auðlind til framtíðar, ekki bara núverandi kynslóð sem getur grætt rosalega mikið á þessu með því að gefa út ótímabundnar heimildir og koma í rauninni þeirri auðlind eða þeim verðmætum í hendur einkaaðila, frá almannahag.

Þetta er lykilatriðið sem er á bak við allt þetta og allar aðrar breytingar sem maður sér. Það er ekki hægt annað en að sjá þetta sem pólitíska ákvörðun, að breyta tímabundnum heimildum í ótímabundnar í þessu frumvarpi, tengt þessum stjórnarskrárbreytingum. Þetta tengist allt. Það sem er sagt í greinargerðinni í þessu frumvarpi er fyrirsláttur. Við erum með löggjafarvaldið hérna og getum einfaldlega sett þær takmarkanir sem þar er fullyrt að sé ekki hægt. Ég bara kaupi það ekki.

Ráðherra segir að þetta frumvarp sé framfaraskref, það eru dýravelferðarsjónarmið og eftirlitssektir og ýmislegt svoleiðis. Það má svo sem vel vera að stór hluti af þessu frumvarpi sé einmitt framfaraskref. Það er verið að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar, ég hef ekkert á móti því. En það er einmitt mjög algengt að það séu settar einhverjar pillur inn í frumvörp hingað og þangað. Þetta er kallað í EES-verkinu blýhúðun eða gylling. Það reyndu einhverjir að þýða þetta áður sem gullhúðun en það var of flott, ef þú gullhúðar eitthvað þá gerirðu það betra. En þýðingin á þessu er eiginlega gylling, það er í rauninni falskt, svona glópagullsgylling. Nýyrðið er því blýhúðun. Þarna er í raun um nokkurs konar blýhúðun að ræða á tillögum og ábendingum Ríkisendurskoðunar og öllum þeim göllum sem hafa verið á þessu fyrirkomulagi að undanförnu. En undirliggjandi í því er: Já, þó að við breytum lögunum og reglunum fram og til baka o.s.frv., gerðum það áður líka, þá þarf samt að sinna eftirlitinu. Það er einfaldlega þannig að núverandi ríkisstjórn hefur ekki lagt neina áherslu á það að sinna eftirliti með þeim framkvæmdaraðilum sem eru ítrekað að svindla á okkur. Ítrekað. Tala niður Samkeppniseftirlitið. Þrátt fyrir metsektir sem tóku einhvern áratug — það hefði nú verið hjálplegra að efla það eftirlit til þess að þetta tæki styttri tíma og allir aðilar hefðu getað klárað það mun hraðar. En nei, í staðinn þá leið eftirlit gagnvart annarri starfsemi fyrir þetta risavaxna mál sem Samkeppniseftirlitð var að glíma við. Og varðandi hina sjávarauðlindina sem er kvótabundin, þar er Fiskistofa í mjög miklum vandamálum með að fylgjast með þessari vigtun og ísprósentu og vatnsbílum og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta er svona „whack-a-mole“-leikur, með leyfi forseta, að lemja í einhverja jarðíkorna sem spretta upp úr holum. Það eru ekki nægilega margir hamrar á þeim sem eru að svindla. Maður verður að draga þá ályktun að það sé pólitísk ákvörðun að hafa ekki hamrana og þegar þeir hitta á jarðíkornann sem er að svindla þá sé engin afleiðing af því. Þá er bara lagabreytingum kippt í gegnum þingið og þetta er lagað á núll einni. Ekkert að sjá hér. Bara haldið áfram að gera eins og þið gerðuð.

Sporin hræða dálítið í þessu umhverfi þar sem við erum nýbúin að ganga í gegnum það að búvörulögin voru toguð fram og til baka í hv. atvinnuveganefnd þar sem samkeppnislögum var kippt úr sambandi. Eftirlitið er gelt, klassískt séð. Við bara sleppum því. Nei, nei, ekkert að sjá hér, hagið ykkur bara eins og þið viljið. Þið reddið þessu. Svona er þetta sjálfregluverkseinokunarbransadót endalaust hérna. Það eru rosalega mörg flögg, margar viðvörunarbjöllur sem fara í gang þegar maður sér hvaða breytingar hafa verið gerðar á þessu frumvarpi milli umsagnarferlis stjórnvalda, man ekki hvað síðan heitir akkúrat núna, og núna þegar málið er komið fyrir þingið. Þegar ráðherra segir að nefndin muni bara redda þessu þá verð ég að segja að ég er ekkert alveg viss um að það sé rosalega traustvekjandi. Það er vandinn í hnotskurn þegar allt kemur til alls, það er skortur á trausti.