154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:47]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Píratar eru grænn flokkur sem nálgast allar framkvæmdir með varúðarregluna að leiðarljósi. Varúðarregla umhverfisréttarins segir okkur að leyfa náttúrunni alltaf að njóta vafans þegar líkur eru á að framkvæmdir geti leitt af sér óafturkræf eða veruleg umhverfisspjöll og þegar ekki er vitað hvort framkvæmdir gætu leitt slíkt af sér. Í því felst að leyfa náttúrunni að njóta vafans. Varúðarreglan, virðulegur forseti, segir okkur að ekki er hægt að hafa fiskeldi í opnum sjókvíum vegna þess að ekki er hægt að koma í veg fyrir veruleg umhverfisspjöll í þeirri starfsemi.

Píratar nálgast því þessa umræðu með hagsmuni náttúrunnar og rétt komandi kynslóða til að búa við líffræðilegan fjölbreytileika í huga. Þess vegna viljum við banna eldi í opnum sjókvíum vegna þess að við viljum standa vörð um náttúruna, vegna þess að við viljum virða lög um dýravelferð, vegna þess að við viljum leyfa náttúrunni að njóta vafans eins og varúðarreglan segir fyrir um og vegna þess að við viljum eftir fremsta megni standa vörð um rétt komandi kynslóða til að hafa aðgang að ósnortinni náttúru og búa við, eins og ég sagði áður, líffræðilegan fjölbreytileika. Þess vegna lögðum við Píratar fram þá tillögu að stöðva alfarið eldi í opnum sjókvíum.

Af umræðunni hér í þessum sal að dæma mætti halda að við Píratar værum í miklum minni hluta með einhverja jaðarskoðun í samfélaginu þar sem við erum eini flokkurinn á Alþingi sem er andvígur eldi í opnum kvíum. Því miður virðist svo vera einmitt hér á Alþingi. Það gerir afstöðu okkar ekki að einhverri jaðarskoðun í samfélaginu, þvert á móti. 70% þjóðarinnar eru andvíg sjókvíaeldi samkvæmt nýlegri könnun. Andstaða við sjókvíaeldi er því viðtekin skoðun í samfélaginu þótt ekki eigi hún sér marga málsvara hér á Alþingi en eins og áður sagði þá á hún sér málsvara hjá Pírötum. Það er alveg skýrt og þingsályktunartillaga okkar um bann við sjókvíaeldi í opnum sjókvíum ber þess skýr merki, sömuleiðis breytingartillaga hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar við það frumvarp sem við ræðum hér.

Virðulegi forseti. Með þessu ávarpi mínu er ég ekki að gera lítið úr mikilvægi þess að auka eða efla aðgengi að fjölbreyttu og öflugu atvinnulífi víðs vegar um landið, þvert á móti. En við þurfum ekki að fórna fjörðunum okkar til þess. Við þurfum ekki að fórna líffræðilegum fjölbreytileika til þess. Við þurfum ekki að fórna hreinleika hafsins til þess. Við þurfum ekki að menga matinn okkar með plasti og eitri til þess. Við þurfum ekki að níðast á dýrum í hundruð þúsunda vís til þess, virðulegi forseti. Við þurfum þess ekki.

Við getum í staðinn eflt tekjustofna sveitarfélaga. Við getum leyft hluta af virðisaukaskatti að verða eftir í heimabyggð. Við getum tryggt að gistináttaskattur verði eftir í heimabyggð. Við getum búið til jákvæða hvata fyrir uppbyggingu á góðu og öflugu atvinnulífi út um allt land án þess að fórna fjörðunum okkar, án þess að fórna líffræðilegum fjölbreytileika og án þess að fórna réttindum komandi kynslóða til að lifa í heilnæmu umhverfi. Við getum t.d. farið í að skoða staðbundin opinber störf út um allt land. Við getum farið í að efla, og þá meina ég stórefla, aðgengi að nýsköpunarstyrkjum og -hröðlum um allt land. Við getum farið í að efla kornrækt út um allt land. Við getum farið af stað með borgaralaun fyrir bændur. Við getum farið af stað með jákvæða og skattalega hvata til fyrirtækja með starfsemi úti á landi svo að nokkur dæmi séu nefnd.

Við verðum að viðurkenna það og við verðum að gangast við því að kvótakerfið hafði gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir margar þessara byggða sem núna eiga allt sitt undir sjókvíaeldinu. Við þurfum að snúa af þeirri braut. Við þurfum að bjóða upp aflaheimildir á opnum og frjálsum markaði. Við þurfum að fara úr þessu kerfi, heimila frjálsar handfæraveiðar og bjóða upp aflaheimildir á frjálsum markaði. Þetta allt myndi efla blómlega byggð í landinu. Frumvarpið sem við ræðum hér stefnir ekki í rétta átt, virðulegi forseti. Það frumvarp sem við ræðum hér hef ég kallað seríu tvö af Verbúðinni, og ég hef tekið eftir því að það hefur vakið nokkrar vinsældir meðal þingmanna. En þetta á líka einstaklega vel við. Þetta er einkar góð samlíking vegna þess að hér er aftur verið að gefa í ótakmarkaðan tíma aðgengi að auðlindum þessa lands til þess að fáir geti grætt á náttúrunni okkar á kostnað komandi kynslóða. Það er það sem við erum að gera hér.

Hæstv. matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, kom í andsvör í dag og sagði í alvörunni að eiginlega væri ástandið núna þannig að það væri ekki öruggt að heimildirnar til að vera með sjókvíaeldi væru ótímabundnar og þess vegna væri þetta líklega engin breyting eða kannski væri betra að hafa það skýrt að heimildirnar væru ótímabundnar. Þetta eru rökin fyrir því að gefa ótímabundið aðgengi að fjörðum landsins. Ótímabundin starfsleyfi. Já, það er ekki alveg víst hvort þau séu tímabundin eða ótímabundin núna þannig að það er bara eins gott að taka af allan vafa um að þau séu ótímabundin.

Hvers lags eiginlega firring er þetta, virðulegi forseti? Þetta er nú meiri þvælan. Vegna þess að það er ekki skýrt hvort laxeldisfyrirtækin hafi ótakmarkaða heimild til að vera með sjókvíaeldi, þá er bara eins gott að ganga úr skugga um það og tryggja með lögum að það myndist óbeinn eignarréttur á þessu þannig að næstu kynslóðir þessa þings geti ekkert gert án þess að baka sér þvílíka skaðabótaskyldu, möguleg stjórnarskrárbrot og ég veit ekki hvað og hvað. Það hefur reynst okkur erfitt að eiga við allt sem heitir ótímabundið leyfi til hins eða þessa ef okkur langar að breyta því og af hverju ætti þetta að vera eitthvað öðruvísi? Hæstv. ráðherra vill setja þetta í hendurnar á nefndinni að ræða og skoða. Hvað var hæstv. ráðherra að gera, þessir þrír hæstv. matvælaráðherrar sem hafa komið að frumvarpinu? Hafa þær enga skoðun á þessu? Er þetta ekki frumvarpið þeirra? Geta þær ekki verið ákveðnar í því sem þær vilja?

Virðulegi forseti. Það er auðvitað óforsvaranlegt að leggja hér til ótímabundnar heimildir til að gera þetta, ekki bara vegna sjónarmiða um að þjóðin eigi nýtingarréttinn á auðlindum sínum og það eigi ekki að framselja þær varanlega í hendur eins né neins heldur einnig vegna sjónarmiða sem Árósasamningurinn færir okkur sem virðist ekki hafa verið tekið neitt tillit til í öllu ferlinu við samningu þessa frumvarps. Árósasamningurinn segir fyrir um rétt almennings til að hafa aðgang og geta látið rödd sína heyrast fyrir hönd náttúrunnar, að geta kært starfsleyfi sem þetta, að geta staðið fyrir náttúruna, að geta staðið fyrir nærumhverfi sitt, að geta farið með mál fyrir dóm eða úrskurðaraðila til að vernda sitt nærumhverfi, til að vernda sína náttúru. Hvernig á almenningur að gera það ef starfsleyfin eru ótímabundin og aldrei er tækifæri til að gera athugasemdir við þau af hálfu almennings? Hvernig? Það er ekki hægt, virðulegi forseti.

Ég hef reifað hér mín helstu sjónarmið gegn sjókvíaeldi og eins og ég sagði áður þá virðumst við ein um það á Alþingi Íslendinga að vilja vera alveg skýr í andstöðu okkar gegn sjókvíaeldi. Ég hef spurt hv. þingmenn hér hvort þeir telji mögulegt að reka eldi í opnum kvíum og virða varúðarregluna og virða lög um dýravelferð vegna þeirrar hræðilegu meðferðar sem laxarnir eru látnir sæta í þessum kvíum. Svörin hafa verið mjög óljós. Það virðist ekki skipta nægilega miklu máli að virða varúðarregluna og lög um dýravelferð vegna þess að hér er um atvinnugrein að ræða sem byggðir, sem hafa kannski ekki úr nógu mörgum atvinnutækifærum að moða, reiða sig á.

Ég kalla þetta hugmyndasnauðgi, virðulegi forseti. Ég kalla þetta metnaðarleysi gagnvart byggðastefnu landsins að vera tilbúin að fórna náttúrunni, fórna líffræðilegum fjölbreytileika, fórna rétti komandi kynslóða til aðgengis að hreinu umhverfi, heilnæmu umhverfi, vegna þess að það skapar störf. Ég er tilbúin að láta varúðarregluna kosta og ég er líka tilbúin og við Píratar erum tilbúin til að taka á okkur vinnuna sem þarf til að bæta það tjón sem verður af völdum þess að loka á mengandi, eyðileggjandi, ógeðslega atvinnustarfsemi sem þessa. Ég er til í það, virðulegi forseti, vegna þess að ég er ekki til í að laxar séu étnir lifandi, að hjörtun í þeim springi svo að við getum borðað aðeins fleiri laxa. Ég lít ekki svo á að með því séum við að brauðfæða heiminn, heldur betur ekki. Þetta er lúxusvara. Hún býr vissulega til einhverja framleiðsluaukningu fyrir okkur og færir vissulega inn einhverjar tekjur, virðulegi forseti, en þær eru ekki þess virði.

Ég verð að segja í ljósi þess að það var ekki einu sinni litið til Árósasamningsins, í ljósi þess að þegar kemur að sjávarútvegi, þegar kemur að landbúnaði, þá virðist einhvern veginn alltaf vera eins og umhverfið þurfi að lúta í lægra haldi, það sé enginn talsmaður náttúrunnar. Því vil ég í lok ræðu minnar, virðulegi forseti, gera ákveðna athugasemd við þá nefnd sem ég tel að þetta mál verði líklega sent til, þ.e. atvinnuveganefnd. Ég tel það ekki rétt, virðulegi forseti. Ég lít svo á að þetta mál eigi betur heima í umhverfis- og samgöngunefnd til þess að sjónarmið náttúrunnar fái aukið vægi við umfjöllun um málið. Ég geri það hér með að tillögu minni, virðulegi forseti. Að því sögðu vona ég að hver sú nefnd sem á endanum fær þetta mál til meðferðar afnemi ótímabindingu og líti síðan alvarlegum augum á það líka hvort 16 ár séu virkilega það sem þarf fyrir starfsleyfi sem þessi, vegna þess að ég heyri það, ég sé það og heyri að við erum hrópandinn í eyðimörkinni í þessum sal þótt þjóðin sé algerlega sammála okkur. Þótt 70% þjóðarinnar séu andvíg sjókvíaeldi þá er það ekki svo hér á þingi. Ég átta mig á því að okkar sjónarmið eiga líklega eftir að lúta í lægra haldi en við hljótum að geta sameinast um það að binda ekki hendur framtíðarkynslóða um aldur og ævi með það hvort við viljum leyfa sjókvíaeldi. Við hljótum að leyfa framtíðarkynslóðum að ákveða hvort þær vilji þetta eða ekki. Tökum ekki af þeim réttinn til að ákveða hvernig atvinnustarfsemi þær vilja hafa í byggðum landsins um ókomnar aldir. Það er ekki okkar réttur að gera það. En með því að gera leyfin ótímabundin, eins og verið er að leggja til hér, þá erum við að gera það. Það er ekki sanngjarnt, virðulegi forseti. Það er ekki rétt og við verðum að breyta þessu.