lagareldi.
Virðulegi forseti. Frumvarp til laga um lagareldi er gríðarlega mikilvægt fyrir vaxandi atvinnugrein í landinu sem hefur svo sannarlega sannað sig í landshlutum eins og á Vestfjörðum. Á undanförnum áratugum hefur mikil lægð verið í atvinnulífinu á Vestfjörðum og Vestfirðingar hafa gengið í gegnum mikla fólksfækkun og sennilega orðið harðast úti af öllum landshlutum vegna kvótakerfisins. Aflaheimildir hafa horfið þaðan og fjórðungurinn eða landshlutinn hefur ekki fengið að njóta nálægðar við fiskimiðin með þeim hætti sem hann á rétt til. Það kemur augljóslega fram þegar við skoðum veiðar eins og strandveiðar þar sem úthlutun aflaheimilda er ekki stór hluti af heildarpottinum. En nú er öldin önnur á Vestfjörðum og vaxandi bjartsýni og fiskeldi er orðin stærsta atvinnugrein fjórðungsins. Svo að það sé alveg á hreinu þá er klárt mál að sjóeldi eða laxeldi í sjó er ekki að fara að hverfa. Þetta er atvinnugrein sem er komin til að vera. Sjóeldi mun ekki verða lagt niður á Íslandi, ekki frekar en við myndum leggja niður álverið í Straumsvík eða verksmiðjuna í Hvalfirði eða álverið í Reyðarfirði. Sjóeldið er komið til að vera og er það vel fyrir landshluta eins og Vestfirði og fleiri byggðarlög úti á landi, fyrir austan og á fleiri stöðum.
Þetta er vaxandi atvinnugrein. Við sjáum það í fjárlaganefnd þegar við fáum upplýsingar um það hver verðmætasköpunin er. Ferðaþjónustan er efst. Svo kemur sjávarútvegur. Svo kemur álið og svo koma aðrar greinar sem eru vaxandi, voru 10% fyrir nokkrum árum og eru komnar upp í 16% af útflutningstekjum og þar er fiskeldið langstærsti hlutinn.
Það hefur hins vegar skort á lagaramma á þessu sviði og hér er komið viðamikið frumvarp sem margt gott er í. En það er eitt atriði sem ég vil gera athugasemd við strax í byrjun, þ.e. að veita eigi ótímabundin rekstrarleyfi. Ég tel að það sé ekki rétt leið að hafa þessi rekstrarleyfi ótímabundin. Ég tel að það myndi styrkja eftirlitið ef þau væru tímabundin og svo er líka það að hér er raunverulega verið að búa til eignarrétt úr rekstrarleyfi, stjórnarskrárvarið skv. 72. gr. stjórnarskrárinnar um eignarréttinn. Þegar einhver aðili fær ótímabundið leyfi frá ríkisvaldinu þá er mjög erfitt að snúa til baka.
Það má líka skoða hvað það er í rekstrarleyfinu sem gerir að verkum að það ætti ekki að vera ótímabundið. Í 30. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta:
„Í rekstrarleyfi skal kveðið á um leyfilegar tegundir í eldi, leyfilega eldisstofna, mótvægisaðgerðir, sem og fjölda og staðsetningu eldissvæða innan viðkomandi smitvarnasvæðis. Í rekstrarleyfi skal hvorki tilgreina hámarkslífmassa smitvarnasvæðis né leyfilegan lífmassa hverju sinni …“
Varðandi staðsetningu eldissvæða þá verður mjög erfitt að endurskoða rekstrarleyfi sem er einu sinni búið að veita ótímabundið. Það getur vel verið að það þyrfti að flytja eldissvæði til innan viðkomandi smitvarnasvæðis og þá er ekki hægt að gera það ef leyfið er ótímabundið. Það verður að vera möguleiki á að endurskoða leyfið með einhverjum hætti. Það er ekki hægt með þessu. Það er grundvallaratriði. Það myndi styrkja eftirlitið gríðarlega mikið ef það væri hægt. Staðsetning eldissvæða kemur líka við landeigendur. Ef þetta er of nálægt landi, ef þetta er innan netlaga og 110 metra frá netlögum, þá skiptir það miklu máli. En þetta er ekki eina leyfið sem fiskeldið býr við. Það er líka starfsleyfi sem Umhverfisstofnun veitir og það eru tímabundin leyfi. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta verði skýrt nánar, munurinn á rekstrarleyfi og starfsleyfi. Það er ekki nægilega vel gert. Það þarf að skilgreina enn betur hver munurinn á þessu er og hvernig það skarast. Starfsleyfin heyra undir önnur lög. Þau eru veitt frá Umhverfisstofnun samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Það lýtur meira að umhverfismati, umhverfisgæðakröfum og fleiri atriðum sem lúta að umhverfinu, viðmiðunarmörk mengandi efna og upplýsingaskyldu og annað slíkt. Það er líka varðandi rekstrarleyfið. Vissulega er hér kafli um afturköllun leyfa en það breytir því ekki að þegar við erum með ótímabundið leyfi þá gerir það allt miklu þyngra. Þetta er ung atvinnugrein og það getur vel verið að seinna meir væri hægt að komast að þeirri niðurstöðu að það væri rétt að hafa ótímabundin leyfi en þau eru í dag til 16 ára og það á að fara að breyta þessum 16 ára leyfum í ótímabundin leyfi og það tel ég ekki vera rétta aðferðafræði. Það er ekki verið að tala gegn atvinnugreininni þegar sagt er að leyfi eigi ekki að vera ótímabundin. Þetta á bæði við um sjóeldi og landeldi, það er líka í 33. gr. varðandi sjóeldið, ótímabundin rekstrarleyfi, og síðan í 101. gr., um ótímabundið rekstrarleyfi vegna landeldis. Það breytir því ekki að við erum alltaf að tala um starfsleyfi líka. Við erum að tala um þessi tvö leyfi í sjóeldi. Það er ekki hægt að reka fiskeldi, hvorki á sjó eða í landi, nema þú sért bæði með rekstrarleyfi og starfsleyfi. Starfsleyfið er tímabundið eftir því sem ég best veit, það kemur fram í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Það eru nokkur atriði sem hafa komið fram í umræðunni. Ég sá að aðalfundur Landssambands veiðifélaga lýsti yfir miklum áhyggjum af frumvarpinu og þar eru nokkrir punktar sem eru áhugaverðir, t.d. varðandi bann við notkun á frjóum laxi þegar í stað þannig að þær kynslóðir sem eru í sjókvíum fái að klára vöxt sinn. Þeir vilja að stefnt verði að því fyrir árið 2030, ef ég man rétt, að ekki verði frjóir laxar í kvíunum. Frumvarpið fjallar um þetta atriði, frjóa laxa, og ég get ekki betur séð en að það séu mjög strangar kröfur um þá. Það er heill kafli, X. kafli, um kynþroska lax. Ég les upp úr 61. gr., um eldi kynþroska eldislax, með leyfi forseta:
„Rekstrarleyfishafi skal seinka kynþroska frjós eldislax svo lengi sem verða má. Óheimilt er að ala frjóan eldislax þannig að áætlað hlutfall kynþroska eldislax í tiltekinni kynslóð eldislax eða í tiltekinni sjókví sé yfir 1% af áætluðum heildarfjölda eldisfisks í viðkomandi kynslóð eða sjókví.“
Það er því óheimilt að hafa meira en 1% af kynþroska fiski, frjóum eldislaxi.
Í 2. mgr. segir, með leyfi forseta:
„Fari hlutfall kynþroska fisks í sjókví yfir 5% af áætluðum heildarfjölda eldisfisks í viðkomandi sjókví skulu allir kynþroska fiskar fjarlægðir úr sjókví.“
Svo eru fleiri greinar, t.d. varðandi aðgerðir til að seinka kynþroska og um sérstakt eftirlit vegna kynþroska fisks. Ég tel þetta vera mjög mikilvægar greinar til að koma í veg fyrir og halda niðri frjóum eldislaxi, kynþroska eldislaxi í sjó. Hlutfallið má ekki fara yfir 1% þannig að það er greinilega komið til móts við þetta atriði varðandi frjóan lax.
Ég er sammála því að rekstrarleyfi og starfsleyfi þurfi að vera tímabundin en ekki ótímabundin eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. En ég get ekki séð annað en að það sé einungis rekstrarleyfið sem eigi að vera ótímabundið, ekki starfsleyfið, og það þarf bæði. Ég vona að breyting verði á þessu þegar málið kemur út úr nefnd. Þetta mun ekki hafa neinar slæmar afleiðingar fyrir atvinnugreinina sem slíka heldur mun það að sjálfsögðu verða þannig að leyfin verða til langs tíma. Í dag eru það 16 ár og þetta myndi ekki ganga gegn hagsmunum fyrirtækjanna á neinn hátt svo lengi sem þau fara eftir öðrum reglum laganna, eins og t.d. með kynþroska lax.
Það er eitt atriði sem kemur fram í fréttinni sem ég er með frá Landssambandi veiðifélaga og það er að strok eldislaxa þarf að leiða til lækkunar á framleiðsluheimildum, óþekkt strok þurfi að sæta afleiðingum. Ég verð að segja að ég er algerlega — það er kafli hér, VIII. kafli frumvarpsins er um strok, þetta eru tíu, ellefu greinar. Það er t.d. fjallað um það að tilkynna eigi strok án tafar, að sjálfsögðu, og það er fjallað um að greiða skuli allan kostnað vegna nauðsynlegra aðgerða og svo eru kröfur um upplýsingar og svo er fjallað um þekkt strok, afleiðingar af því, og svo óþekkt strok. Sektarfjárhæðir eru t.d. 5 millj. kr. fyrir hvern strokinn frjóan lax, 5 millj. kr. sekt. Það er hluti af áhættumati. Svo er annað sem er ekki hluti af áhættumati erfðablöndunar og þar er milljón í sekt. Það er farið vel ofan í þetta í VIII. kafla í frumvarpinu.
Ég er hins vegar algerlega ósammála því að strok eigi að leiða til lækkunar framleiðsluheimilda. Það tel ég ekki eiga að vera. Ég get rökstutt það þannig að að sjálfsögðu, þegar verið er að brjóta lög — það er núna verið að rannsaka sakamál á Vestfjörðum sem lögreglustjórinn á Vestfjörðum felldi niður og það var kært til ríkissaksóknara og hann sendi það aftur til baka í hérað til rannsóknar. Þá eru að sjálfsögðu refsiviðurlög sem þarf að beita ef lög hafa verið brotin hvað það varðar. Þá eru sektir og mögulega, ef ég man rétt, afturköllun leyfis. Það er hér sérstakur kafli um afturköllun rekstrarleyfis, bæði varðandi sjókvíaeldi og landeldi. En af hverju segi ég að strok eigi ekki að leiða til minnkunar framleiðsluheimilda? Það er vegna þess að í stjórnarskránni er atvinnufrelsi og ég get ekki séð að það sé rétt að fara í framleiðsluskerðingar hjá atvinnufyrirtæki, minnka verðmætasköpun fyrirtækisins vegna þess að það hafa orðið mistök, jafnvel lögbrot. Það er ekki hægt að segja við fyrirtækin: Nei, þú færð bara leyfi til að framleiða minna, það verður minni verðmætasköpun hjá þér af því að þú braust lögin. Viðkomandi mun þurfa að sæta afleiðingum með venjulegum hætti, sem eru sektir og annað slíkt. Ég get ekki séð að það séu málefnaleg rök fyrir því að skerða atvinnufrelsi fyrirtækis sem hefur lent í stroki eða hefur brotið lögin sem slík. Það á að fara eftir öðrum leiðum. Það eru ekki almannahagsmunir sem krefjast þess heldur. Ef við skoðum bara beinlínis 75. gr. stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi þá þarf að skerða atvinnufrelsi með lögum og almannahagsmunir þurfa að vera fyrir hendi. Ég tel það ekki eðlilegt að fara í framleiðsluskerðingu hvað þetta varðar, það á bara að hafa sinn eðlilega farveg að sjálfsögðu og krefjast þarf úrbóta hjá fyrirtækinu og beita sektum ef þess þarf.
Þetta frumvarp fer því miður ekki til nefndar sem ég er í, ég á ekki sæti í atvinnuveganefnd. En ég vonast til að það fái góða meðferð þar. Þar er mikilvægast, klárlega, að ótímabundna leyfið verði tímabundið. Ég tel að það muni ekki ganga gegn hagsmunum atvinnugreinarinnar, það muni ekki skaða framleiðsluna á laxi eða vöxt greinarinnar sem er mjög mikilvæg úti á landi, í landshlutum eins og á Vestfjörðum.
Ég undirstrika það, fyrir þá sem eru á móti sjóeldi í landinu, að það er ekki að fara, sjóeldi er komið til að vera. Það er búið að byggja sláturhús í Bolungarvík fyrir milljarða og það á eftir að stækka það enn þá meira, það á eftir að verða helsta sláturhús landsins í sjóeldinu og ef ég man rétt þá er líka verið að gera þetta á Djúpavogi. Þessi atvinnugrein er komin til að vera og við verðum að hafa góðan lagaramma, góðar reglur um þetta sem halda utan um greinina og leyfa eðlilegan vöxt. Það er það sem við eigum að einbeita okkur að. Ég segi við þá sem telja að landeldi muni leysa allan vanda að ég fór í ferð með atvinnuveganefnd bæði til Færeyja og Noregs og við spurðum ítrekað að þessu: Hvað með sjóeldið? Mun það hætta? Nei, það mun ekki hætta. En það sem Færeyingar eru hins vegar farnir að gera er að hafa seiðin lengur uppi á landi og setja þau seinna út í sjó og láta þau vaxa þar. Landeldi mun vissulega aukast en útsjávareldi mun koma líka, svokallað „offshore“-eldi, það mun bætast við. En kjarninn mun mjög líklega áfram verða sjóeldi og þannig mun það verða í framtíðinni. Við byggjum líka upp landeldi í kringum sjóeldið, eins og Færeyingar hafa t.d. gert til að auka framleiðni.
Ég tel að þetta sé mjög mikilvæg löggjöf og góður rammi og svarar vonandi því ákalli sem kom í hinni svakalegu skýrslu frá Ríkisendurskoðun í fyrra, um að komið verði á fót góðri stjórnsýslu, góðum lagareglum og góðu eftirliti með þessari atvinnugrein svo sómi verði að. En þetta er ekki fullkomið frumvarp og þá er sérstaklega mikilvægt að við séum ekki að gefa ótímabundin rekstrarleyfi sem gætu valdið erfiðleikum seinna þegar við ætlum að fara að endurskoða málin. Það eru einfaldlega þannig atriði sem tengjast rekstrarleyfunum, sem gefa til kynna að þau eiga ekki að vera ótímabundin, (Forseti hringir.) sérstaklega varðandi staðsetningu kvía og annað slíkt, sem þarfnast endurskoðunar í framtíðinni.