lagareldi.
Frú forseti. Það er ekki að ástæðulausu að hiti hefur verið í þessari umræðu hér í þingsalnum í dag. Þrátt fyrir að frumvarpið sé mikið að smíðum og skipt niður í marga eðlisólíka kafla er staðreynd að pólitíska kjarnaatriðið, og það sem allt snýst um, er að hér er verið að smíða frumvarp til að verja hagsmuni hinna fáu; almannahagsmunum er fórnað til að verja sérhagsmuni í þessu máli. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír þurfa einfaldlega að horfast í augu við það að Alþingi, jafnt sem þjóð, sér hvað hér er að gerast. Kjarnaatriðið hér er að réttindi til nýtingar á auðlind sem stjórnvöld eru að færa fyrirtækjum eru á skjön við aðra íslenska lagasetningu. Það er meginregla á Íslandi eins og annars staðar að tímabinda réttindi þegar stjórnvöld úthluta takmörkuðum gæðum til nýtingar á náttúruauðlindum í þjóðareign. Hér er verið að fara í þveröfuga átt með því að færa fyrirtækjum réttindi varanlega. Tímabundið og ótímabundið, þessi hugtök hafa sömu merkingu í lagasetningu og í almennu tungutaki og það skilja allir hvað þetta þýðir. Í öllum lýðræðisríkjum gildir þessi sama aðalregla um að aðgangur að auðlindum er tímabundinn og það er sú regla sem þjónar almannahagsmunum.
Dæmin úr íslenskri lagasetningu, fyrir utan auðvitað það fráhvarf sem hér er að verða frá núgildandi lögum um fiskeldi, eru að rekstrarleyfið hefur þangað til nú verið veitt til 16 ára og í lögum um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu er ákvæði um tímabundin leyfi til allt að 65 ára. Í frumvarpi ríkisstjórnarflokkanna þriggja, þar sem smíða átti lagaumgjörð í kringum hálendisþjóðgarð, var talað um að tímabinda atvinnuleyfi í náttúruauðlind hálendisins. Við þekkjum að það er ein veigamikil undantekning frá þessari meginreglu í íslenskri lagasetningu sem er reglan sem smíðuð var sérstaklega í kringum fiskinn í sjónum. Hagsmunum hverra hefur það þjónað? Tímabinding réttinda er sem sagt rauði þráðurinn í lagasetningu þegar stjórnvöld eru að úthluta takmörkuðum gæðum til nýtingar á náttúruauðlindum í þjóðareign. Einhverra hluta vegna gildir önnur regla um sjávarauðlindina og nú á að færa firðina okkar undir þessa sömu vondu reglu. En í þetta sinn þarf ríkisstjórnin að vera meðvituð um það að þjóðin skilur hvað það þýðir og þjóðin skilur hvað hér er verið að gera. Það er ekki hægt að endurtaka leikinn og láta sem hér sé verið að gera eitthvað annað en það sem við blasir.
Ég ætla að fá að segja eins og er að mér finnst byrjun hjá nýjum hæstv. matvælaráðherra vera vond, að hún skuli hér á fyrstu dögum leggja upp með frumvarp eins og þetta og ganga algjörlega í lið með sérhagsmunum.
Forseti. Pólitískar átakalínur í þessu máli virðast fram til þessa vera skýrar. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstri græn standa saman um að fara þessa leið. Þau hafa staðið saman um að verja óbreytt ástand hvað sjávarútveginn varðar og ætla nú að bæta fiskeldinu undir sama hatt. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír hafa allt sitt ríkisstjórnarsamstarf staðið í vegi fyrir réttlátum breytingum í sjávarútvegi. Það var t.d. mjög skýrt þegar unnið var að auðlindaákvæði í stjórnarskrá á síðasta kjörtímabili. Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi forsætisráðherra, um auðlindaákvæði fór algerlega gegn því markmiði að ætla að verja auðlindina með þeim hætti sem kallað hefur verið eftir. Í frumvarpi forsætisráðherra var farin sú leið að tala um þjóðareign en þess vandlega gætt að gefa því orði enga raunverulega merkingu og ekkert raunverulegt inntak, bara orðin tóm. Orðið þjóðareign getur aldrei öðlast neina raunverulega merkingu nema það komi fram með skýrum hætti í stjórnarskrá að nýting á sameiginlegri auðlind sé gerð með tímabundnum samningum og að greiða skuli eðlilegt gjald fyrir nýtinguna. Með því að verja þjóðareign í stjórnarskrá myndi ekki skipta máli hvaða flokkar væru við völd á hverjum tíma því ríkisstjórnin væri bundin af þessum grundvallarleikreglum í stjórnarskrá okkar. Nýtingarrétturinn væri alltaf tímabundinn. Þetta er það atriði sem öllu máli skiptir í hinu pólitíska samhengi. Ég velti því fyrir mér hvort með þessu frumvarpi sé fram komin skýring á því að þetta vonlausa ríkisstjórnarsamstarf fær að lifa áfram; til þess að geta á lokametrunum komið fram með svona rakalausa lagasetningu eins og við erum að sjá hér.
Ég vil nefna það sérstaklega að ágreiningur í þessu máli, rétt eins og um kvótakerfið, um fiskinn, snýst ekki um fyrirkomulag veiða. Við þekkjum það að kvótakerfið var sett á vegna slæms ástands fiskstofna við landið. Við þekkjum það að ákvarðanir um veiðar eru vegna kvótakerfisins í kjölfarið teknar út frá vísindalegum forsendum. Framleiðni, hagræðing, verðmætasköpun, allt þetta hefur aukist með kvótakerfinu. Kvótakerfið er sem skipulagstól og tæki í þágu þjóðfélagsins alls. Það ver sameiginlega auðlind okkar með því að það stýrir veiðunum á farsælan hátt. Um þetta fyrirkomulag veiðanna er enginn pólitískur ágreiningur. Ágreiningur hvað fiskinn í sjónum varðar hefur snúist um hlut þjóðarinnar, réttlátan hlut þjóðarinnar, hvað þjóðin fær fyrir og að þjóðareign fái að þýða eitthvað, að þjóðareign sé ekki færð fyrirtækjum varanlega. Um það snýst ágreiningurinn. Um það snýst sárið í íslenskri þjóðarsál og það er ástæðan fyrir því að við erum hér fram á kvöld að mótmæla þessu máli þegar það er fyrst lagt fram. Við vitum og sjáum hvað hér er að gerast.
Ég vona innilega að það geti orðið þannig, þegar þetta mál fer til meðferðar í atvinnuveganefnd þingsins, að þingmenn allra flokka hlusti á þær umsagnir sem munu berast um það. Um þetta mál verður tekist á í meðförum þingsins. Umsagnaraðilar munu sjá það sama og við okkur blasir hér. Ég biðla til þingmanna meiri hlutans að hlusta nú og fara ekki í þá hörmulegu vegferð að endurtaka mistök, og það er eiginlega ekki hægt að tala um mistök þegar ásetningurinn er þetta mikill.