154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[20:40]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og þessa athugasemd. Varðandi stofnun Þjóðaróperu þá er það svo að fjárframlög til Íslensku óperunnar voru alfarið á vegum ríkisins en umgjörð og eftirlit skorti algerlega. Við erum því að stíga hér mjög ákveðið skref til þess að auka gagnsæi og eftirlit með opinberum fjármunum. Af því að hv. þingmaður hefur mjög miklar áhyggjur af efnahagsframvindunni og hvernig við erum að nota opinbert fé þá kannast ég ekki við að hv. þingmaður hafi haft sömu áhyggjur þegar við vorum að fella niður skólagjöld hjá Listaháskóla Íslands, sem ég tel reyndar að hafi verið mikið framfaraskref svo að aðgengi væri jafnt fyrir okkar unga fólk í listnám. Mig langar svolítið að skilja hver hljóð og mynd hv. þingmanns er, hvers vegna gerðar eru athugasemdir við aukningu upp á 75 millj. kr. á næsta ári þegar ég tel að kostnaður við niðurfellingu á skólagjöldum sé mun meiri. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það hver munurinn er á því að setja 75 milljónir í stofnun Þjóðaróperu og hins vegar umtalsverðri niðurfellingu á skólagjöldum.