154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[20:42]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og spurninguna. Þó svo að ég hafi verið að beina spurningu að ráðherranum þá finnst mér mikilvægt að við ræðum allar þær aðgerðir sem við ætlum að grípa til með tilliti til hvaða áhrif það hefur á fjármál ríkisins. Þessi aðgerð sem hæstv. háskólamálaráðherra fór í er innan þeirra ramma sem málaflokkurinn er í. Mig langaði hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra um tækifæri til að efla menningu á landsbyggðinni og nýta þessar 30 sekúndur sem ég á eftir, af því að verið er að þjappa öllum störfum í menningu og listum á höfuðborgarsvæðið og ekki er verið að ýta frekar undir frekari atvinnutækifæri í listum á landsbyggðinni. Ég hef verulegar áhyggjur af því. Er hæstv. ráðherra með augun á boltanum þar?