154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[20:43]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér þykir leitt að koma hér í pontu og þurfa að benda hv. þingmanni á að það voru tvær rangfærslur í orðum hennar. Í fyrsta lagi er verið að auka fjárframlög til háskólastigsins um hundruð milljóna. Það kann að vera að það hafi farið fram hjá hv. þingmanni þannig að ég veit ekki hvort það standist algjörlega að þetta sé innan ramma, en kannski þurfum við að skoða það. Í öðru lagi þá erum við að sjálfsögðu búin að vera að auka menningarlíf á landsbyggðinni. Eins og kom fram í framsögu minni er verið að tala um stóraukið samstarf við öll menningarhús úti á landi í tengslum við Þjóðaróperu. Ég fullyrði það hér að þessi undirbúningur hefur allur verið til fyrirmyndar og við erum svo sannarlega með augun á boltanum. Ég vona að hv. þingmaður geri það líka.