sviðslistir.
Frú forseti. Ég vil þakka yfirferð hæstv. ráðherra á þessu ágæta máli sem mér finnst tilefni til að fagna sérstaklega að liggi nú fyrir. Ég þarf ekkert að fjölyrða um þýðingu og mikilvægi öflugs menningarlífs í þessu landi. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir það. Ég lýsi yfir þeirri skoðun minni hér að fjárfestingar af þessu tagi í menningarlífi eru ekki fjáraustur. Þetta er fjárfesting í skapandi greinum. Þær gefa af sér, ekki bara andlega heldur líka fjárhagslega.
Í almennum athugasemdum frumvarpsins kemur fram að markmið þess sé að nýta samlegðaráhrif og rekstrarlega hagræðingu, m.a. í samræmi við ábendingar ríkisendurskoðanda í skýrslu um stofnanir ríkisins frá 2021, með almannahagsmuni að leiðarljósi. Svo að ég grípi niður í skýrslu ríkisendurskoðanda þá segir í henni á bls. 29, með leyfi forseta:
„Ríkisendurskoðun telur að skoða beri fýsileika sameininga eða aukinnar samvinnu framangreindra sviðslista- og tónlistarstofnana. Með hliðsjón af eðlislíku kjarnahlutverki mætti kanna hagræði af slíku. Ríkisendurskoðun bendir á að í Danmörku eru sviðslistir á vegum hins opinbera reknar undir einum hatti.“
Ég tek eftir því að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að óperustjóri verði undir þjóðleikhússtjóra settur í skipuriti og vil því nota tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra hvort hér fari í raun fram sameining sviðslista undir einum hatti, ef svo má telja, og hvernig hagsmunaaðilar og þeir samráðsaðilar sem mér skilst að hæstv. ráðherra hafi átt samráð við taki þessu skipuriti.