154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[20:47]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir bæði stuðninginn og framsýnina við frumvarpið. Það er hárrétt, sem kemur fram í máli hv. þingmanns, að framtíðarsýnin er ein öflug sviðslistastofnun þar sem við erum með Þjóðleikhúsið, Þjóðaróperu og vonandi Íslenska dansflokkinn, ekkert ósvipað fyrirkomulag og er í Danmörku. Þetta er hins vegar fyrsta skrefið á þeirri vegferð. Þeir sem voru að undirbúa frumvarpið — ég vil hrósa því sérstaklega hvað er verið að nýta alla menningarinnviði mun betur en áður hefur verið gert með því að setja á laggirnar Þjóðaróperu sem er annars vegar innan veggja Þjóðleikhússins og hins vegar Hörpu. Það sem mér finnst mestu máli skipta, sem ég get í raun og veru ekki lagt meiri áherslu á, er þessi samfella í starfi, að þarna sé hægt að ráða 12 söngvara og við getum verið með einhvern fyrirsjáanleika í dagskrá Þjóðaróperu, og svo þessi samlegðaráhrif sem eru að eiga sér stað. Að lokum, virðulegi forseti, var skýrsla ríkisendurskoðanda auðvitað skoðuð sérstaklega með þetta að leiðarljósi.