sviðslistir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég má til með að nota tækifærið aftur og fagna því að hér séu háleit menningarleg markmið í öndvegi. Ég skynja líka hreinlega að hér séu áherslur út fyrir borgarmörkin, að menningarstofnun sem þessi nái að skila áhrifum sínum út í hinar dreifðu byggðir. Ég verð samt líka að fá að nota tækifærið til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggst tala máli þessa málaflokks innan ríkisstjórnarinnar á þessu þingi og úti í samfélaginu, því að ég heyri á andsvörum og í samtölum við hagsmunaaðila marga hverja, sem hafa ekki beinlínis skýra skírskotun til starfsemi þessarar stofnunar sem hér liggur fyrir, að talið er að þetta sé einmitt það sem við eigum að eyða sem minnstum peningi í á tímum óðaverðbólgu. (Forseti hringir.) Hvað eigum við að segja við fólk? Hvað ætlar ráðherra að segja við ríkisstjórnina?