sviðslistir.
Virðulegi forseti. Mér er svolítið brugðið að heyra hv. þingmann tala um óðaverðbólgu. Nú myndum við kannski frekar segja að níundi áratugurinn hafi verið tími óðaverðbólgu þar sem verðbólga fór vel yfir 100%. Það er óðaverðbólga og ég myndi nefna ríki eins og Argentínu í því samhengi, þannig að tal um óðaverðbólgu í þessu samhengi er kannski ekki beinlínis viðeigandi. Við erum að sjálfsögðu búin að gera ráð fyrir þessu í ríkisfjármálaáætlun eins og hv. þingmaður gerir sér líklega grein fyrir. Það er auðvitað svo, eins og ég fór yfir í minni framsögu, að við höfum sem þjóð verið að leggja áherslu á óperu alveg síðan á 19. öldinni. Ég verð að segja að biðin eftir þessu er búin að vera býsna löng og það er mér er svo ofarlega í huga í stjórnmálum að við náum að klára svona mál vegna þess að flestir sem eru að stunda nám í óperu eða eru óperusöngvarar hafa jafnvel ekki getað búið á Íslandi.