sviðslistir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það eru þrjú atriði sem mig langar að spyrja um. Hér er verið að stofna Þjóðaróperu með óperustjóra og það er ákvæði í 2. mgr. 8. gr. c um samstarf við stofnanir, félög og aðra sem starfa að sömu markmiðum. Nú man ég vel eftir Íslensku óperunni í Gamla bíó og þeim drifkrafti sem var þar þegar verið var að hefja starfsemi og þeim krafti sem var í þeim hópi, sem var ekki ríkisstofnun. Er ekki gríðarlega mikilvægt að við séum ekki eingöngu algerlega að ríkisvæða óperuna? Munu Þjóðarópera og óperustjóri geta farið í samstarf eins og um einkarekstur sé að ræða og jafnvel sett upp vinsæl verk þannig að viðskiptamódelið sé jafnvel á einkareknum grundvelli þar sem hagnaður er af sýningum og öðru slíku? Áhættan er þá ef einkasamtök eru í þessu líka — að þetta verði ekki allt saman ríkisrekið? Verður ekki tryggt að horft verði til samstarfs sem verður ekki eingöngu með auknum fjárútlátum ríkisins heldur líka með því að einkaaðilar komi að?
Annað sem mig langar að spyrja um er það sem ég tek eftir í greinargerðinni, að talað er um að stefnt verði að því að vera með sýningar í Þjóðleikhúsinu, Hofi á Akureyri og Hörpu í Reykjavík en það er eiginlega aldrei talað um aðra landshluta. Mér finnst ekki nægilegt þegar talað er um landsbyggðina að bara sé talað um Hof á Akureyri. Hvað með sýningar t.d. í Skagafirðinum? Ég veit að Skagfirðingar eru ansi söngelskir og sama er á Ísafirði, í Húnavatnssýslu og á Vesturlandi. Það er alveg klárt mál að mér finnst ekki nægilegt að horfa eingöngu til Akureyrar alltaf þegar verið er að tala um landsbyggðina. Verður ekki örugglega tryggt að þetta verði á allri landsbyggðinni, líka í fámennari byggðakjörnum? (Forseti hringir.)
Að lokum langar mig að spyrja — ég kem að því í seinna andsvari svo að ég sé ekki að svíkja á tíma.