sviðslistir.
Virðulegur forseti. Það sem ég var að ýja að er hvort Þjóðarópera eða óperustjóri geti farið í samstarf við einkaaðila sem myndu stjórna og stýra verkefninu, þ.e. að stjórn verkefnisins verði í höndum einkaaðila en Þjóðarópera verði samstarfsaðili, þetta verði ekki undir stjórn óperustjóra eða Þjóðaróperu heldur að hún verði bara einn af aðilunum sem yrðu kannski undir stjórn áhugamannahóps sem hefur áhuga á að setja upp sýningu á þeirra forsendum, að þessu sé ekki öllu eingöngu stjórnað af Þjóðaróperu og hún sé alltaf í forystu um allt sem gert er í óperu í landinu heldur geti hún líka verið samstarfsaðili sem stýrir ekki verkefninu. Það er það sem ég vildi nefna. En ég hlakka til að fara á óperusýningu og hlusta á óperu á Ísafirði, Borgarnesi, í Stykkishólmi og á Blönduósi, svo ég tali nú ekki um í Skagafirði. Ég var nú að vinna þar og eru þeir alveg ótrúlega söngelskir. Ekki það, ég hef ekkert á móti Eyfirðingum, síður en svo. En kjarnaatriðið hvað þetta varðar er að þetta sé út um allt land.
Að lokum langar mig að spyrja hæstv. ráðherra að því (Forseti hringir.) að komið er inn á 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að Þjóðarópera taki mið af þeim samningi, hvort hún gæti farið aðeins nánar í það og aðgengi fatlaðs fólks að menningu.