sviðslistir.
Virðulegi forseti. Varðandi aðgengi fatlaðs fólks að menningu og listum þá legg ég sem ráðherra alveg gríðarlega áherslu á það. Það sem hv. þingmaður vísar til eru í raun og veru þessi aðgengismál. Svo vil ég líka nefna að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er með og lagði fyrir þingið aðgerðaáætlun fyrir fatlað fólk. Eitt af því sem við leggjum sérstaka áherslu á í sameiningu er að fatlað fólk hafi þetta aukna aðgengi að menningu og listum. Eitt af því sem er að gerast, og er gríðarlega merkilegt, er listsköpun fatlaðs fólks og það skiptir öllu máli að við sem samfélag, og við erum sterkt samfélag, hlúum að þeirri listsköpun eins og listsköpun allra annarra eða allra landsmanna.