154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[20:59]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Frumvarpið sem hér er til umfjöllunar felur það í sér að óperustarfsemi á Íslandi fari undir beina stjórn ríkisins en verði að formi til sett aftur inn í Þjóðleikhúsið. Íslenska óperan hefur haldið uppi fjölbreyttri starfsemi í rúma fjóra áratugi. Allt frá byrjun hefur starfsemin einkennst af miklum listrænum metnaði og hefur ekki verið um það deilt að stofnunin hefur haft algjöra forystu á sviði óperuflutnings á Íslandi. Þá verður ekki heldur um það deilt að stofnunin hefur nýtt það fjármagn sem hún hefur haft til umráða með hagnýtum hætti. Til vitnis um þetta má skoða samanburð við rekstur sambærilegra opinberra stofnana í nágrannalöndum okkar. Íslenska óperan er í hugum landsmanna okkar þjóðarópera. Hún hefur starfað í þágu þjóðarinnar af miklum stórhug og mörg hundruð listamenn hafa tekið þátt í uppfærslum hennar sem sýndar hafa verið fyrir mörg þúsund gesti ár hvert.

Nú er búið að ákveða að Íslenska óperan skuli hætta störfum, samstarfi hennar og ríkisins skuli hætt og að stofna skuli Þjóðaróperu. Tilgangur frumvarpsins virðist vera að færa meginhluta óperustarfsemi á Íslandi undir beina stýringu ráðherra. Notkun orðsins þjóðarópera hljómar ágætlega en virðist kannski vera nýtt til skrauts og færa má rök fyrir því að þjóðarópera sé þegar fyrir hendi og henni megi koma í annan farveg með mun einfaldari hætti en reynt er að gera með frumvarpinu.

Mér finnst markmið frumvarpsins ekki nægilega skýrt og það sama má segja um listræn eða rekstrarleg markmið. Segja má að búið sé að fórna sjálfstæði óperunnar og verið er að snúa 44 ár aftur í tímann með því að gera óperuna að deild í Þjóðleikhúsinu en undirsetja hana jafnframt valdi ráðherra á flestum sviðum. Þetta gengur gegn ríkjandi stefnu annars staðar á Vesturlöndum. Ríkisstofnunarformið hefur hvarvetna verið víkjandi undanfarna áratugi en form hlutafélaga eða sjálfseignarstofnana að styrkjast. Frumvarpið fer því gegn þeim straumum. Það er óneitanlega sérstakt að færa óperuna undir Þjóðleikhúsið án þess að starfsemin lúti stjórn þjóðleikhússtjóra eða þjóðleikhúsráðs.

Í frumvarpinu fer lítið fyrir kostnaðar- og ábatagreiningu. Gert er ráð fyrir margföldun á beinum kostnaði ríkisins án þess að reynt sé að greina ábatann. Slíkt mat hlýtur að vera forsenda nýrra opinberra útgjalda. Í þessu tilviki að listræn framsetning batni, að kostnaðaraukning svari kröfum eftirspurnar eða að nýting fjármuna verði betri. Í frumvarpinu eru loforð um fjárveitingar sem á að efna eftir 4–5 ár. Það sjá allir, m.a. þeir sem eru í stjórnmálum, að það er ekki fast í hendi. Því má spyrja: Hvers vegna mega ákvarðanir um óperuflutning ekki vera í höndum einkaaðila lengur eins og verið hefur? Er ekki unnt að hafa ákveðinn fjölda klassískra söngvara á opinberum launum án þess að ríkið sjái þeim fyrir hlutverkum? Hefur rekstur Íslensku óperunnar verið ríkinu óhagkvæmur?

Ég hnaut hér um eina setningu í greinargerð með frumvarpinu. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Með lögbundnu hlutverki öðlast Þjóðarópera bolmagn til að fylgja eftir stefnu hins opinbera hvað varðar jafnrétti, inngildingu og aðgengi auk þess að opna dyr fyrir nýjum Íslendingum.“

Ekki er tilgreint með hvaða hætti Íslensku óperuna hafi skort bolmagn til að fylgja þessari stefnu eftir og maður spyr sig: Hvað þýðir þetta? Hvað þýðir það sem ég fór hér yfir? Var ekkert jafnrétti hjá Íslensku óperunni — mætti spyrja sig að því? Hvað felst í Þjóðaróperu og inngildingu? Þá segir einnig í greinargerðinni:

„Með tilkomu Þjóðaróperu opnast nýir möguleikar í samþættingu listgreina, skapandi frumkvöðlastarfi og endurnýjun listformsins. Auk þess mun Þjóðarópera skapa starfsvettvang fyrir söngvara, hljóðfæraleikara, tónskáld, textahöfunda, hönnuði og leikstjóra, auka fjölbreytni í menningarstarfsemi hér á landi og stuðla að varðveislu og miðlun íslensks menningararfs og íslenskrar tungu í listsköpun. Stofnun Þjóðaróperu er þar að auki til þess fallin að hafa jákvæðar afleiddar afleiðingar, svo sem fyrir ferðaþjónustu og aðra atvinnustarfsemi, í þágu þeirra markmiða sem fram koma í stefnu stjórnvalda um málaflokkinn.“

Það verður aldrei ákveðið með lögum að menningarstarf skuli aukast og að það sé vegna áforma um sameiningu stofnana. Það er engin tilviljun að Sinfóníuhljómsveit Íslands er ekki að spila undir í Þjóðleikhúsinu og hjá Íslenska dansflokknum eða Íslensku óperunni. Að ætla að gefa opinber fyrirmæli um að þannig eigi hljóðfæraleikarar að starfa leiðir ekki til góðs. Of mikil forsjárhyggja í þessu efni skapar ekki betri list.

Frumvarpið kveður ekki á um ný listræn markmið. Einu rekstrarmarkmiðin sem sett eru fram með sambærilegum skýrleika eru að Þjóðarópera nái fullri starfsemi á leikárinu 2028/2029 með þreföldun fjárframlags í 650 millj. kr. og að hún muni ráða yfir 12 fullum stöðugildum fyrir einsöngvara og 16 hálfum stöðugildum fyrir kór, auk fasts starfsfólks, án þess að sá fjöldi sé tilgreindur en yrði líklega 10–12. Þess er ekki getið hvernig þessir 12 söngvarar skuli nýttir eða fjöldi söngstöðugilda settur í samhengi við fjölda sýninga. Almennum orðum er farið um að stefnt sé að því að ná meiri samfellu í leikárið og að sýningartímabilið verði lengt. Því má ætla að stefnt sé að 6–7 stórum sýningum á ári og hafa slíkar tölur komið fram í fjölmiðlum. Með því að uppsetning óperu kosti 130–180 millj. kr. er fjárlagaramminn eða fjárhagsramminn strax sprunginn.

Aðeins er rætt með almennum orðum um samstarf listastofnana og óperuflutning utan Reykjavíkur. Enginn áþreifanleg merking eða markmið eru sett í því sambandi. Skýrt markmið er þó um sýningar og stuðning við íslenskar óperur og ég fagna því. Velta má því fyrir sér hvort þeim markmiðum sem koma fram í frumvarpinu sé hægt að ná með einfaldari leiðum en hér er gert ráð fyrir, hvort sem er með sjálfseignarstofnun, hlutafélagi eða ríkisstofnun með raunverulegu sjálfstæði. Mörg hafa verið í framkvæmd hjá Íslensku óperunni nú þegar. Hægt er að fastráða söngvara með auknu fjárframlagi og þetta var reynt hjá Íslensku óperunni við misjafnan árangur. Tímabundnar ráðningar geta orðið ungum söngvurum mikill stuðningur við að efla listrænan þroska og starfsframa og skýrt samhengi þarf þá að vera á milli fjárveitinga, fjölda stöðugilda og raunverulegra þarfa.

Samstarf listastofnana er þegar fyrir hendi. Íslenska óperan hefur sýnt í Þjóðleikhúsinu og hefur áhuga á að gera það oftar. Hún hefur unnið að samstarfi við Borgarleikhúsið, sýnt í Hofi á Akureyri, Eldborg og Norðurljósum í Hörpu. Markmiðið hefur ávallt verið að nýta hagkvæmasta sýningarrýmið. Íslenska óperan og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa rætt samstarf en kjarasamningar hafa þar reynst vera hindrun. Hægt er að auka samfellu í leikárinu með fleiri uppfærslum og auknum fjárframlögum. Samhljómur hefur lengi verið um að íslenskur markaður þoli með góðu móti tvær stórar óperuuppfærslur á ári. Hár kostnaður við hverja uppfærslu leggur á skyldu um vandað mat á hvort stórum uppfærslum skuli fjölgað.

Íslenska óperan hefur lagt sig fram um að sýna og hefur sýnt íslenskar óperur sem mæta listrænum kröfum og ekkert sem hindrar að sú þróun haldi áfram óháð rekstrarformi. Með breyttri markaðssetningu hefur Íslenska óperan náð góðum árangri við að auka sölu til erlendra ferðamanna. Áætlað er að um 12–14% seldra miða á stórar óperusýningar séu til erlendra ferðamanna. Það er hægt að þróa þennan markað undir hvaða rekstrarformi sem er og ekki að sjá að ríkisrekstur bæti einhverju við.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að Þjóðaróperu sé heimilt að hafa tekjur af eigin starfsemi og taka aðgangseyri. Þarna vantar markmið. Að sama skapi verður ekki séð að gerðar séu kröfur hvað þetta varðar. Íslenska óperan hefur ávallt þurft að hámarka eigin tekjur af miðasölu og kostum. Takmarkað aðgengi að fjármagni hefur skapað hvatann og Íslenska óperan hefur með þessu náð hærra hlutfalli eigin tekna en gengur og gerist í sviðslistum á Íslandi. Ekki er minnst á sjálfbærni og hvernig starf í hennar anda getur aukið hagkvæmni og bætt nýtingu fjármagns og efna. Íslenska óperan hefur átt í vaxandi samstarfi við erlendar óperur um samnýtingu sviðsmynda, búninga og uppfærslna. Með því sparast fé, sóun á öllum sviðum minnkar og umhverfismarkmið nást.

Frú forseti. Eðlilegt væri að frumvarpið myndi leiða til ávinnings, listræns eða fjárhagslegs. Ekki verður séð að sýnt sé fram á það og ekki er að sjá að þessi atriði séu raunverulega kveikja frumvarpsins. Snúist málið ekki um rekstrarleg sjónarmið og hag ríkissjóðs er ástæðulaust fyrir stjórnmálamenn að hafa puttana í listsköpun. Þeir eiga að skapa umgjörð og svigrúm til að ná megi langt en ekki álíta að vegna ákvarðana þeirra verði samin fleiri tónverk eða settar upp betri og fleiri sýningar. Með samþykkt frumvarpsins verður Þjóðarópera ekki sjálfstæð stofnun heldur deild í Þjóðleikhúsinu. Almennt er hins vegar viðurkennt að fullt sjálfstæði sé best í skapandi greinum. Í frumvarpinu felst ákveðið ráðherraræði í óperumálum á Íslandi, eins undarlega og það hljómar.

Íslenska óperan hefur starfað í 44 ár. Hún var sköpuð af hugsjón og sýn einstaklinga sem vildu lyfta upp óperustarfsemi frá því að vera hliðarstarfsemi í Þjóðleikhúsinu í sjálfstæða óperu sem færði neytendum klassískar óperur og nýsamin verk af hæstu listrænu gæðum. Sjálfsagt er að endurskoða rekstrarform eftir því sem aðstæður breytast. Ríkisrekstrarform er hins vegar lakasti kosturinn að mínum dómi. Íslenska óperan hefur notið mikils velvilja ríkisstjórna og fengið frá þeim þann fjárstuðning sem nauðsynlegur hefur verið til að halda uppi góðri starfsemi. Sá stuðningur hefur þó verið mismikill eftir árferði í ríkisfjármálum og hefur ríkið þannig getað litið á sín framlög sem breytilegan kostnað en ekki fastan. Þetta hefur skapað ríkan hvata hjá Íslensku óperunni til að nýta fjármagn vel og leggja áherslu á að afla sem mestra eigin tekna. Íslenska óperan hefur þannig getað gefið samfélaginu mikið fyrir litla fjármuni. Þökk sé aðgengi að hæfileikaríkum söngvurum, tónlistarfólki og öðru listrænu fólki hefur Íslenska óperan notið mikils áhuga áheyrenda, fengið frábæra dóma og unnið sér virðingu langt út fyrir landsteina. Íslenska óperan hefur staðið fyrir mikilvægri menningarstarfsemi. Hún er gott dæmi um það hvernig samstarf einkaaðila og ríkisins hefur sannarlega verkað til góðs og birtist okkur í listrænum metnaði; samstarf sem á að mínu mati skilið að fá að lifa áfram.