sviðslistir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þá lofgjörð sem hann hefur haft um Íslensku óperuna. Ég vil fyrst segja það að Íslenska óperan hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki síðustu áratugi. Hins vegar er það ríkissjóður Íslands sem hefur verið að fjármagna nánast alla starfsemina og því er uppsetning hv. þingmanns nánast villandi, þ.e. hér er gefið í skyn að það séu einkaaðilar sem sjái um og beri ábyrgð á þessari sköpun og öllu því sem Íslenska óperan hefur verið að gera. Það er því miður ekki rétt. Það kann að vera að hv. þingmaður hafi fengið upplýsingar um slíkt, ég get ekki sagt til um það, en ríkissjóður Íslands hefur á síðustu tíu árum verið að fjármagna Íslensku óperuna og þau framlög sem koma frá einkaaðilum, samkvæmt þeim ársreikningum sem ég hef undir höndum, eru algerlega minni háttar.
Í öðru lagi erum við að tala um mun meiri samvinnu og samlegð með þessu fyrirkomulagi og þetta er eitthvað sem óperusöngvarar og geirinn hefur verið að kalla eftir. Þetta var til að mynda draumur Garðars Cortes á sínum tíma, að Íslenska óperan myndi þróast í Þjóðaróperu.