154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[21:15]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra. Það var nú ekki beinni spurningu beint til mín en ég vil bara segja það sem ég sagði í ræðu minni, að ég tel að það fyrirkomulag sem við höfum haft á þessu samstarfi milli ríkisins og Íslensku óperunnar hafi gefist vel. Ég rakti það ágætlega í ræðu minni. Ég veit vel að framlag ríkisins hefur algerlega verið grundvöllurinn að þeirri starfsemi en þetta samstarf hefur gefist mjög vel og ég sé ekki ástæðu til að fara að breyta því. Það er mitt innlegg í þessa umræðu. Ég veit vel að hæstv. ráðherra vill vel í þessum málaflokki og ég er ekki að gagnrýna það sem slíkt. Ég er einfaldlega að segja að mér finnst vanta í þetta frumvarp að maður sjái ákveðið markmið. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að sjálfstæði skipti afar miklu máli í skapandi greinum og það hefur verið minn málflutningur.

Í frumvarpinu er farið yfir þætti sem Íslenska óperan er að mínu mati að sinna mjög vel og ekkert hægt að gagnrýna hana fyrir það. Ég get ekki séð að þetta frumvarp muni bæta nokkru við það. Eins og ég segi enn og aftur þá hefði ég viljað sjá þetta samstarf, sem ég tel að hafi verið farsælt og hafi verið lengi, halda áfram. Eflaust er hægt að skoða rekstrarforsendur hverju sinni og fara yfir það en þurfum við að fara alla leið og gera það með þessum hætti? Ég tel svo ekki vera.