154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[21:18]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég geri orð hv. þm. Halldóru Mogensen að mínum. Ég óska hæstv. ráðherra til hamingju með þetta frábæra frumvarp. Mig langar að koma hér upp og taka þátt í þessari umræðu án þess að ætla að lengja hana eitthvað sérstaklega fram eftir kvöldi. Mér finnst svo magnað að við séum að taka stór og ábyrg skref í því að efla skapandi greinar, lyfta listinni, lyfta tónlistinni og lyfta klassísku tónlistinni. Það er algerlega tímabært. Við þekkjum það að það er samofið sögu þessarar þjóðar að við erum söngelsk. Alls staðar þar sem við komum saman, í gleði eða sorg, er söngurinn í hávegum hafður. Við höfum átt og eigum stórkostlega listamenn á sviði óperunnar. Hversu oft höfum við ekki fundið fyrir þjóðarstoltinu þegar okkar besta fólk stígur á svið erlendis af því að við hugsanlega höfum ekki getað veitt því þau tækifæri hér heima sem það hefur átt skilið? Við áttum smá orðastað undir fjármálaáætlun um nákvæmlega þetta, þar sem ég kom inn á það að það er glæsilegur árangur að við séum að sjá föst stöðugildi, framtíðarsýn og fjármögnun. Ég kem hér til að fagna þessu mikilvæga skrefi. Ég heyri að það eru ekkert endilega allir alltaf sammála en þannig er það nú bara í lífsins leik. Ég held að það séu t.d. ákveðnir hlutir sem alltaf ættu að vera undir ríkinu, ekki endilega allir hlutir en mjög margir og því eru fjölmargir í þessum sal oft ósammála og leggja mikið á sig til að sameina hinar ýmsu stofnanir og ganga svolítið hart að ríkisrekstrinum, sem mér finnst mjög alvarlegt og hef í raun áhyggjur af. En hér held ég að við séum að stíga mikilvæg skref til bóta til að lyfta einni dýrmætustu listgrein sem við eigum í okkar þjóðarsál.