154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[21:26]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum kærlega fyrir mjög málefnalegar og upplýsandi umræður. Ég tel að það hafi jafnvel orðið aðeins skýrara en áður hvernig fjármögnun hefur verið varðandi óperustarfsemi síðustu áratugi og mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram. Ég fullyrði að þetta er gríðarlega mikilvægt frumvarp til þess að styðja við sviðslistir og óperusöng á Íslandi. Það verður allt annað umhverfi þegar við erum búin að setja upp Þjóðaróperu, sem má segja að beðið hafi verið eftir í talsverðan tíma. Að sama skapi er ég líka mjög þakklát þeim sem hafa starfað og unnið við Íslensku óperuna vegna þess að Íslenska óperan hefur að sjálfsögðu lagt mjög mikið af mörkum varðandi óperusöng á Íslandi og haldið honum gangandi. Hins vegar er löngu tímabært að skapa sterkari umgjörð um söngvarana okkar og óperuflutning og ég tel að líka sé mjög mikið af tækifærum sem tengjast óperustarfsemi og ferðaþjónustu. Þær þjóðir sem eru fjölmennastar að heimsækja landið okkar eru Bandaríkjamenn og Bretar. Komið hefur í ljós að margir hafa mikinn áhuga á íslenskri menningu, eða um 55%. Þarna tel ég að séu vannýtt tækifæri og það að sækja fram í þágu skapandi greina á Íslandi er partur af því að líta á tækifærin í kringum okkur og kynna íslenska menningu enn frekar fyrir þeim gestum sem sækja landið okkar heim.

Ég læt hér með lokið máli mínu og legg til að frumvarpinu verði vísað til meðferðar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd.