154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[21:48]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög fróðlegt innlegg og áhugaverða nálgun á starfslaun listamanna og þann stuðning sem virðist vera í innleggi hans hér og skilning á mikilvægi skapandi greina fyrir íslenskt samfélag. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna tungumálið. Það er afar mikilvægt að við séum með fjölbreytta listaflóru til að styðja við menninguna og opna hana gagnvart nýjum íbúum þessa lands í gegnum tungumálið og skapandi greinar.

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefndi landsframleiðslu. Ég get upplýst hv. þingmann um það að á næstu dögum mun ég kynna nýja skýrslu sem er efnahagsleg úttekt á framlagi skapandi greina til landsframleiðslu ásamt nýjum tillögum um hvernig við getum enn frekar eflt hinar skapandi greinar. Þar kemur fram að skapandi greinar séu um 3,5% af landsframleiðslu. Til samanburðar, af því að ég þekki auðvitað ferðaþjónustuna mjög vel, er ferðaþjónustan í kringum 8% og starfa þar um 22.000 manns. Hinar skapandi greinar hafa því verið að sækja í sig veðrið en þær hafa líka, svo að maður sé sanngjarn, verið mjög öflugar á Íslandi. Við getum verið mjög stolt af því.