154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[21:50]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta jákvæða innlegg og verður mjög áhugavert að heyra kynningu ráðherra á þessari skýrslu sem hún nefndi um mikilvægi skapandi greina þegar kemur að landsframleiðslu og hagvexti og sem innlegg í þjóðarframleiðsluna. Ég fagna því að hæstv. ráðherra hafi látið taka þessa skýrslu saman. Þetta er mjög fróðlegt og væri ánægjulegt að fá sérstaka umræðu í þinginu um þessa skýrslu vegna þess, eins og hæstv. ráðherra nefndi, að þessar tölur eru miklu hærri og mikilvægið miklu meira en við gerum okkur almennt grein fyrir. Það sem er svo jákvætt við þetta er að fólk kemur hingað til landsins gagngert til að fara á listviðburði. Nú er t.d. Hönnunarmars nýhafinn og ég veit um fólk sem kemur sérstaklega erlendis frá, vinafólk í Bandaríkjunum, til að fara á Hönnunarmars. Við sjáum því að þessar greinar eru afar mikilvægar og ég fagna þessu innleggi hæstv. ráðherra.

Varðandi listamannalaunin almennt þá vil ég ítreka það sem ég sagði, að það þarf að fara svolítið vandlega yfir hvað hentar best. Ég held t.d. að launin séu of lág og þau hafa ekki hækkað lengi, en væntanlega getum við ekki á sama tíma hækkað launin og fjölgað þeim verulega. Finna þarf eitthvert jafnvægi þarna á milli og væri mjög mikilvægt að fá fagaðilana sjálfa að borði því að við vitum að þetta kostar náttúrlega peninga. Ég veit ekki nákvæmlega að hve miklu leyti þetta er fjármagnað í fjármálaáætlun en við erum að tala um 600 milljónir á ári fram til 2028 og við þurfum náttúrlega að finna peninga fyrir því. (Forseti hringir.) Það væri kannski fróðlegt að fá það fram í seinna andsvari hjá hæstv. ráðherra hvernig hún sér fyrir sér að við náum að fjármagna þetta.