154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[21:55]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma inn á ákveðin atriði sem ég tel vert að reifa hér. Þetta er vissulega mikilvægt frumvarp fyrir listafólk. Við erum menningarþjóð og eigum frábæra listamenn á öllum sviðum, m.a. einn nóbelsverðlaunahafa sem fékk nóbelsverðlaun 1955, sem er náttúrulega alveg frábært og mættu þeir að sjálfsögðu vera fleiri. Það er samt ekki hafið yfir gagnrýni að við séum að setja peninga og aukin útgjöld til listamanna þó í litlu magni sé, einhver hundruð milljóna. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er að þegar starfslaun listamanna voru ákveðin fyrir þetta ár, ef ég man rétt, fékk fremsti listamaður þjóðarinnar, ljóðskáldið Gyrðir Elíasson, ekki starfslaun. Ég get ekki annað séð en að kominn sé tími á það að skoða þessar úthlutunarreglur og hverjir eru að úthluta peningum til listamanna þegar horft er fram hjá einu fremsta ljóðskáldi Íslands nú á tímum. Þá setur maður stórt spurningarmerki við úthlutunarkerfið vegna þess að úthlutanir eru samkvæmt ákvörðunum stjórnvalda og nefnda sem fá umboð frá ráðherra. Það skiptir mjög miklu máli að þessar úthlutanir séu réttlátar og miðaðar við framlag listamanna. Það er mér algjörlega óskiljanlegt að Gyrðir Elíasson skyldi ekki hafa fengið starfslaun listamanna. Hann ætti að vera á heiðurslaunum hjá okkur en því miður varð ekki úr því um síðustu jól. Það gerir að verkum að ég set spurningarmerki við þær úthlutunarreglur og þær starfsaðferðir sem eru varðandi úthlutun þess fjármagns sem hér er m.a. verið að auka.

Annað atriði tel ég mikilvægt að benda á. Ég get tekið dæmi varðandi Þjóðaróperu, frumvarpið sem var flutt áðan af hæstv. ráðherra. Sambærilegir kaflar eru í báðum frumvörpum, bæði um Þjóðaróperu og hér um nýja sjóði og fjölgun úthlutunarmánaða til listamanna. Kaflinn heitir „Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar“. Í greinargerð með frumvarpi um Þjóðaróperu segir, með leyfi forseta:

„Í 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem fullgiltur hefur verið af Íslands hálfu, er fjallað um rétt fatlaðs fólks til að taka þátt í menningarlífi. Samkvæmt b-lið 1. mgr. ákvæðisins skulu aðildarríki samningsins gera viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk njóti aðgengis að leikhúsi og öðrum menningarviðburðum í aðgengilegu formi, sbr. einnig 9. gr. samningsins um aðgengi. Grein frumvarpsins um hlutverk Þjóðaróperu tekur mið af framangreindu orðalagi samningsins og er þannig áréttað að réttindi fatlaðs fólks til að njóta menningar og taka þátt í menningarlífi verði höfð til hliðsjónar í starfi Þjóðaróperu.“

Hérna er verið að vitna í mikilvægan alþjóðlegan samning um réttindi fatlaðs fólks. Það er hins vegar ekki gert varðandi þetta frumvarp. Ég hefði ætlað að taka hefði mátt tillit til þessa samnings þegar kemur að listamönnum í hópi fatlaðs fólks, að þeim verði líka tryggður aðgangur að þessum sjóðum þannig að farið verði eftir samningnum. Ég get ekki annað en bent á ákvæði 30. gr. samningsins þar sem segir, með leyfi forseta:

„Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái tækifæri til að þróa og nota sköpunargáfu sína og listræna og vitsmunalega getu, ekki einvörðungu í eigin þágu, heldur einnig í því skyni að auðga samfélagið.“

Ég get ekki annað séð en að frumvarpshöfundar hafi algjörlega litið fram hjá 2. mgr. 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks vegna þess að í 4. kafla, Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar, er ekki minnst einu orði á samninginn eins og er gert varðandi Þjóðaróperu. Að sjálfsögðu ber að horfa á 2. mgr. 30. gr. sem ég var að vitna í, grein sem heitir Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi. Ég hefði talið að eðlilegt væri að horfa til þessarar greinar en það er ekki gert. Það er engin umfjöllun í frumvarpinu um þetta ákvæði. Það tel ég mjög miður og ekki í samræmi við alþjóðaskuldbindingar okkar hvað varðar réttindi fatlaðs fólks. Það virðist vera valið á milli, í einu frumvarpinu er horft til samningsins en síðan í öðru frumvarpinu er það ekki gert. Ég tel það vera mikinn ljóð á frumvarpinu, sérstaklega þegar sérstakt ákvæði segir að aðildarríkin skuli gera ráðstafanir til að fatlað fólk fái tækifæri til að þróa og nota sköpunargáfu sína í því skyni að auðga samfélagið. Með þessum peningum sem hér á að fara að setja til listamanna með frumvarpinu virðist ekki vera horft til þess að fatlað fólk sé þar undir, ekki er horft til samningsins um réttindi fatlaðs fólks og þá sérstaklega þessarar 2. mgr. 30. gr. Það set ég stórt spurningarmerki við. Líka við það að á meðan við erum að berjast hér við kjaragliðnun, áratugagamla kjaragliðnun sem skiptir tugum prósenta, sé á sama tíma verið að setja aukinn pening til listamanna og svo til fjölmiðlamanna af hálfu ríkisins. Í 76. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir, með leyfi forseta:

„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.“

Það er ekkert svona ákvæði varðandi listamenn eða fjölmiðlamenn, ekki neitt. Það er alveg klárt mál að íslenska ríkinu ber stjórnskipuleg skylda að sjá til þess að fatlað fólk fái aðstoð, t.d. vegna örorku, og fái líka notið sköpunargáfu sinnar. Það ber að taka tillit til þess í lögum eins og þessum þegar verið er að deila peningum til listamanna, hundruðum milljóna. Þá ber að horfa til stjórnarskrárinnar og líka til alþjóðasamninga og það ber að fjalla um það í kafla sem heitir Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Það er ekki gert. Þetta er meiri háttar galli á frumvarpinu. Það er hvorki fjallað um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 30. gr., né 76. gr. stjórnarskrárinnar.

Með þessum orðum vonast ég til að fjallað verði um þetta í nefndinni, tekið á þessu og fyllt inn í 4. kafla hvað þetta varðar. Mér finnst það bara eðlilegur hlutur. Það er ekki nægjanlegt að í einu frumvarpinu sé vitnað í samninginn en ekki í öðru. Það á að gera það í öllum frumvörpum sem lúta að listum og höfum við alþjóðaskuldbindingar hvað það varðar. Að sjálfsögðu eigum við að styðja við listir, þær eru mikilvægar fyrir þjóðfélagið og efnahagslífið en það breytir því ekki að við getum ekki gert alla að ríkisstarfsmönnum. Vissulega eru listir gríðarlega mikilvægar fyrir okkur í efnahagslegu tilliti og skila miklu í þjóðarbúið en það er vegna þess að það er drifkraftur í íslenskum listamönnum. Þeir afla tekna og selja sínar bækur og afurðir, listsköpun sína, úti í heimi og hér á Íslandi. Við verðum alltaf að horfa á það þegar við styrkjum listirnar og listamenn að tekið sé tillit til allra þjóðfélagshópa, líka þeirra sem verst standa. Það virðist vera að alltaf sé horft fram hjá fötluðu fólki og fátæku fólki þegar horft er til þessara málaflokka. Vissulega er tekið tillit til jafnræðis- og jafnréttissjónarmiða, fjallað um þau o.s.frv. en það verður líka að gera þegar kemur að fötluðu fólki og þeim stjórnarskrárákvæðum sem þar eru undir, 76. gr., og 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.