154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:05]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir innleggið og nefna það, fyrst hann minntist á nóbelsverðlaunaskáldið okkar, að það vill svo skemmtilega til að í dag er afmælisdagur hans. Því er viðeigandi og ánægjulegt að við séum að ræða bæði þessi framfaramál sem tengjast listsköpun.

Varðandi réttindi fatlaðs fólks og þá ágalla sem hv. þingmaður nefnir á frumvarpsgerðinni í tengslum við þau þá tel ég mjög brýnt og mjög mikilvægt, séu þessir ágallar með þessum hætti, að nefndin komi til móts við þetta. Eitt af því jákvæða sem ég hef tekið þátt í að gera sem ráðherra er að styðja betur við umgjörð fatlaðs fólks, hvort sem er í menntun, á vinnumarkaði eða í tengslum við skapandi greinar, og tel ég afar mikilvægt að hlúð sé að þessu.

Annað vil ég nefna sem skiptir máli og nefnt var hér. Ástæða þess að við erum að kynna nýjan sjóð sem heitir Vegsemd er í raun og veru sú að við erum að taka mið af breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Það er ánægjulegt að lífslíkur og lífaldur eru að hækka og þetta frumvarp tekur mið af þessum breytta veruleika. Það er talsverður munur á fyrirkomulagi heiðurslauna listamanna annars vegar, sem eru ákvörðuð á þingi, og hins vegar því kerfi sem er búið að setja upp. Ég held að það sé mikilvægt að við getum haldið í þetta.