154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:09]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að nefna þrennt. Í fyrsta lagi er mjög blómleg starfsemi á vegum Listar án landamæra þar sem fatlaðir listamenn hafa verið að sækja í sig veðrið með sýningum og aukinni starfsemi. Í öðru lagi er afar ánægjulegt að núna er sýning í Listasafni Íslands þar sem verið er að sýna verk fatlaðs listafólks, þetta er blönduð listsýning sem mér finnst mjög mikilvægt skref hjá Listasafni Íslands. Í þriðja lagi verður þessu frumvarpi vísað til atvinnuveganefndar vegna þeirrar ástæðu að hér er um að ræða starfslaun, hér er atvinna á ferð og við sjáum að hlutfall skapandi greina í landsframleiðslu er komið upp í 3,5%. Það er líka þannig að starfslaun listamanna og verk listafólks hafa mikil margföldunaráhrif út í atvinnulífið. Nýverið var gerð skýrsla á vegum virts alþjóðlegs fyrirtækis sem tók út hvaða margfaldari væri í kvikmyndagerðinni, ef hann væri. Þá kom í ljós að ein króna sem fjárfest er fyrir í kvikmyndaiðnaði skilar sér tæplega sjöfalt aftur inn í hagkerfið.