154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:12]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir síðara andsvar. Það er gott að vita að hæstv. ráðherra fylgist vel með listsköpun fatlaðs fólks og þeim viðburðum sem henni tengjast og er mjög mikilvægt að við gerum þessum hópi hátt undir höfði eins og öðrum hópum þegar kemur að listsköpun og styrkjum hann að sjálfsögðu með sama hætti og aðra listamenn í landinu. Ég verð þó að segja að ég er mjög hissa á því að þetta fari til atvinnuveganefndar en ekki allsherjar- og menntamálanefndar sem sér um menningarmálin. Sem dæmi er það allsherjar- og menntamálanefnd sem ákveður heiðurslaun listamanna og ég gekk út frá því sem vísu að þetta frumvarp færi til hennar. Ég ætla ekki að gera ágreining um það núna en áskil mér rétt til að gera það seinna. Ég mun kanna frekar hvort ég óski eftir því að þetta fari til allsherjar- og menntamálanefndar þar sem ég tel að þetta eigi sannarlega heima. Ég ætla ekki að gera ágreining um það núna, þá þarf að vera sérstök atkvæðagreiðsla um það, en áskil mér rétt til að hugsa aðeins nánar um þetta og tala jafnvel við nefndarmenn um það og eigin flokksmenn. Ég tel að málið eigi klárlega heima í allsherjar- og menntamálanefnd og mér finnst forsendurnar nægilegar fyrir því að það fari til atvinnuveganefndar vegna þess að hér erum við að tala um styrki til listsköpunar. Miðað við skilgreininguna á störfum allsherjar- og menntamálanefndar er klárt að menningarstarf og menningarmál heyra þar undir, þar á meðal styrkir til menningarmála. Þetta er ekki atvinnustarfsemi, þetta eru styrkir. Þetta eru starfslaun listamanna, styrkir til listamanna en ekki atvinnustarfsemi. Vissulega er atvinnustarfsemi í því að listamenn hafi tekjur af starfsemi sinni en þetta er yfirleitt talið vera styrkir. Ef það á að flytja menningargeirann í atvinnuveganefnd er það stærri ákvörðun og þarf þá að breyta þingskapalögum að mínu mati.