listamannalaun.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð sína á þeim umbótum sem til stendur að innleiða hvað varðar starfskjör sjálfstætt starfandi listamanna hérlendis í formi frumvarpsins sem hér liggur fyrir. Íslenska er örtungumál, hún er á undanhaldi, hún er í talsverðri hættu og öll skref í þær áttir að tryggja hana, vernda hana og efla eru skref í rétta átt. Ég veit að hæstv. ráðherra vill gera allt sem þarf til að sigla henni í skjól, í öruggar hafnir, en betur má ef duga skal. Hér eru skref í rétta átt en við þurfum auðvitað öll að vera með augun á markinu sem er að samfélagssátt ríki um það að hér njóti listir réttlátra, eðlilegra og hagkvæmra styrkja.
Þegar listamannalaun koma til umræðu verður mér hugsað til greinar sem ég las í ársbyrjun 2020 og ég gróf hana upp. Þetta er grein eftir Arndísi Þórarinsdóttur barnabókahöfund. Þar segir:
„Það er ömurlegt að tilheyra starfsstétt þar sem besta mögulega niðurstaða janúarmánaðar sé sú að vera smánaður og kallaður afæta í kommentakerfunum, fyrir það að hafa fengið lágan styrk gegn vinnuframlagi sem flestir eru sammála um að sé mikilvægt. Ástæðan fyrir því að þessu er slegið upp í fjölmiðlum er sú að listamenn hafa náð til þjóðarinnar. Listamennirnir eru þekktir af því að verk þeirra lifa með þjóðinni. Og það er þeim refsað fyrir á hverju einasta ári.“
Þetta lýsir stöðunni og hún er alvarleg og hún hefur ekkert breyst. Afstaða almennings á öldum ljósvakans, sem heitir núna kommentakerfi fjölmiðlanna, er ekki skemmtilegasti staðurinn til að vera á í byrjun janúarmánaðar hvers árs. Endurspeglar þetta vilja þorra þjóðarinnar? Ég veit það ekki. En þetta er ekki æskileg staða. Það verður okkar mikla verkefni, okkar sem höldum um löggjafarvaldið, og þeirra sem halda um fjárveitingavaldið sömuleiðis, að tala máli þeirra sem hljóta framlög úr sameiginlegum sjóðum okkar; þeirra sem hafa lagt á sig langan vinnudag og setja sál sína og hjarta og allt afl í að búa til sína list sem síðan gerir íslenskt samfélag hreinlega þess virði að búa í, hvorki meira né minna. Það verður líka að taka fram að rithöfundar njóta lítils starfsöryggis. Þeir eiga engan uppsagnarfrest, fá engar atvinnuleysisbætur eða veikindarétt þegar alvara lífsins skellur á. Eins og einn ágætur umsagnaraðili sagði í umsögn á samráðsgátt: Það kemur í ljós í desember ár hvert hvernig næsta ár verður.
Það er umfram allt jákvætt að hér sjáum við fram á fjölgun þeirra aðila sem hljóta launin. Best væri auðvitað að við gætum hækkað þetta allt upp í rjáfur í samræmi við þann auð sem þetta fólk býr til. En við vitum auðvitað að þetta verður allt að fara fram í rökréttum og eðlilegum skrefum. Þá nefni ég aftur samfélagssáttina um þetta fyrirkomulag. Við eigum öll að vinna saman að henni, tíma okkar er mjög vel varið í að vinna að henni. Auðvitað getum við alltaf spurt um fyrirkomulag og aðferðir og leiðir og hér hafa margir lagt fram málefnalegar athugasemdir. En það verður ekki síst verkefni hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, og líka skoðanasystkina hennar í ríkisstjórnarflokkunum, að sjá til þess að þessar umbætur nái fram að ganga, því ef marka má aðild sumra sem hafa komið að þessum málaflokki í gegnum tíðina, sem eiga sæti í ríkisstjórnarflokkunum, leyfi ég mér að segja að það sé æskilegt að hrósa sigri að leikslokum. Ég lofa því jafnframt að við jafnaðarmenn hljótum að styðja þetta mál, a.m.k. eins og það lítur út núna, með fyrirvara um frekari meðferð í þeirri málefnanefnd sem tekur málið til umfjöllunar.
Virðulegur forseti. Klukkan er margt, ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Það er hluti af lífi hvers þingmanns að setja hér á þingfundi fram á sum kvöld og ég kvarta venjulega alls ekki yfir því hlutskipti, alls ekki, nema í kvöld. Því heima missti ég af því að lesa Draumaþjófinn með litlum sex ára syni mínum. Hann getur ekki hætt að tala við mig um rotturnar í Hafnarlandi. Þetta er bók sem var skrifuð af rithöfundi, Gunnari Helgasyni, sem fékk ritlaun í sex mánuði árið 2019 til að geta gefið þá bók út, væntanlega fyrir jólin það ár. Þetta er verk sem hefur leitt af sér alls konar aðrar afurðir, m.a. leiksýningu sem sýnd var fyrir fullu húsi í marga mánuði, sem ég reyndar misst af illu heilli, og framhaldsbækur eru komnar. Afleidd störf af þessu verki eru óteljandi heilt yfir litið. Þetta verk nefni ég bara vegna þess að það er í gangi heima hjá mér. Það veitir frábæra tilfinningu að eiga bók heima sem gerir lífið miklu betra. Þessa tilfinningu er ekki hægt að vekja með litlum lesurum heima fyrir nema vegna þess að við styrkjum barnabókahöfunda, íslenska listamenn, til sinna starfa. Það gerum við ekki í gegnum fyrirtæki. Við gerum það í gegnum þessar gáttir og við eigum að vera stolt af því. Meira svona.