154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:22]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð hv. þingmanns. Meira af þessu, vegna þess að það er svo sannarlega rétt nálgun á mikilvægi lesturs og bókmennta. Ein besta gjöf sem foreldrar og aðstandendur geta veitt börnunum sínum er að stuðla að auknum orðaforða og lesa með þeim. Ef við sinnum ekki bókmenntum þessarar þjóðar munum við sjá orðaforða fara dvínandi og því miður sjáum við það í hinum alþjóðlegu prófum, PISA. Við þurfum bara að gera meira af því að lyfta upp bókmenntum og ritun og öllu sem því tengist. Ég er því hjartanlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þessa. Ég er hins vegar eilítið ósammála einu sem kom fram í máli hv. þingmanns, þ.e. að ég tel að það sé vaxandi stuðningur og skilningur á mikilvægi skapandi greina og starfi listamanna. Við sjáum í öllum greinum lista, hvort sem það eru sviðslistir, tónlist, kvikmyndir, hönnun og arkitektúr, dans o.fl., að við eigum sem þjóð framúrskarandi listamenn á öllum þessum sviðum sem hafa bæði notið velgengni og fengið viðurkenningu hérlendis og erlendis. Þess vegna erum við hér að tala fyrir þessum málaflokki; við vitum að þetta er til að efla samfélagið okkar.