154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:24]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna því að við séum sammála um stóru myndina. Hæstv. ráðherra segir að hún finni fyrir vaxandi stuðningi gagnvart hinum skapandi greinum. Ég vona svo sannarlega að hæstv. ráðherra hafi rétt fyrir sér. Ég vona af öllu hjarta að ég hafi rangt fyrir mér og að skynjun mín sé í trássi við þann raunveruleika sem við búum við. Ég veit ekki hvort ég sé bara orðin svona dugleg að fara út úr bergmálshellinum en ég hef orðið vör við sífellt háværari raddir. Ég nefni það sem við vorum að tala um áðan, að þegar róðurinn er þungur í efnahagsmálum eru margir sem nefna oft skapandi greinar sem fyrsta fórnarlamb hins stóra niðurskurðarhnífs. Ég segi bara að aldrei er of oft hlúð að því að halda þessum greinum uppi. Ég held að róðurinn hafi yfirleitt verið þungur í því að tala máli þessa fólks. Við þekkjum þessa umræðu, að þeir sem geta selt bækur, hvort sem það eru metsöluhöfundar eða ekki, eigi auðvitað að njóta góðs af því og þeir sem eiga ekki markaðinn vísan eigi bara hreinlega að gera eitthvað annað við sitt líf. Þetta er umræða sem við þekkjum öll; af hverju á fólk að fá styrk til að skrifa bók sem það getur ekki selt á eigin spýtur? Við þurfum ekki að eyða tíma okkar í þetta. En verum ekki kærulaus, verum á varðbergi því að aldrei er hægt að styðja listina nógu mikið, sérstaklega við sem höfum völdin.