154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:27]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði líka að koma hingað til þess að nefna að það er dálítið merkilegur dagur í dag. Við vorum formlega að opna nýja tónlistarmiðstöð. Þessi nýja tónlistarmiðstöð er afrakstur tónlistarstefnu til ársins 2030 og við settum líka á síðasta vorþingi ný lög um tónlist. Það er gaman frá því að segja að uppsprettan eða krafturinn í þeirri vinnu kemur í gegnum vinnu sem við fórum í á Covid-tímum þar sem við þurftum svo sannarlega að styðja við hinar skapandi greinar, sér í lagi sviðslistir. Eins og við þekkjum var auðvitað mjög erfitt að koma fram, halda tónleika og annað slíkt. Þessi vinna er búin að skila öllu þessu og við erum að styðja við umgjörð allra þessara listgreina til að þær séu hreinlega samkeppnishæfar. Annað í þessu efni er að umgjörð skapandi greina er búin að breytast svo mikið, til að mynda með stórum streymisveitum og allt öðru aðgengi. Þess vegna er svo brýnt að við séum á tánum, séum með stefnu fyrir hverja listgrein og aðgerðir sem við fylgjum svo eftir. Ég myndi segja að þetta væru jafnvel ný vinnubrögð og ég held að þau séu að skila sér í enn öflugra umhverfi fyrir skapandi greinar.