154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:31]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Mig langaði bara að koma stuttlega upp, fyrst og fremst til að fagna þessu máli og í rauninni að óska hæstv. ráðherra til hamingju með það. Ég óska líka hæstv. ráðherra til hamingju með að vera laus við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu þannig að kannski verði þetta að veruleika. Það sem við erum að tala um hér með listamannalaunum er í raun ákveðin útfærsla af því sem kalla mætti skilyrðislausa grunnframfærslu, eða það sem við mörg myndum kalla borgaralaun listamanna. Erum við Píratar auðvitað mjög hlynnt því og fögnum þessu máli mjög. Tilgangur listamannalauna er auðvitað að tryggja afkomu fólks sem starfar við listir og skapandi greinar, eins og kemur fram í frumvarpinu, og miklar úrbætur fólgnar í fjölgun þeirra mánaða sem er úthlutað.

Mig langar hins vegar líka að fagna sérstaklega fjölgun sjóða. Það er annars vegar þessi sjóður sem ætlaður er ungum listamönnum, Vöxtur, þvert á greinar og sömuleiðis Vegsemd, sem er ætlaður eldri listamönnum. Svo vil ég enn meira fagna sérstökum sjóði fyrir höfunda í kvikmyndagerð. Markmið listamannalauna er vitanlega að efla listsköpun í landinu en frá 2009 hafa þessi lög ekki verið endurskoðuð. Þetta frumvarp boðar endurskoðun sem er orðin löngu tímabær. Eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu er mikilvægt að bæði umfang og fyrirkomulag listamannalauna sé endurmetið reglulega, m.a. með tilliti til fólksfjölgunar, áherslna í listsköpun og eftirspurnar eftir listamannalaunum. Þær breytingar sem þarna eru gerðar tel ég að endurspegli það ágætlega og endurspegli þörfina ágætlega, þ.e. þessir nýju sjóðir fyrir unga listamenn, eldri listamenn og sérgreindur sjóður fyrir kvikmyndahöfunda sem ekki hefur verið áður.

Um Vegsemd segir í greinargerðinni, með leyfi forseta:

„Vegsemd er sérstakur, þverfaglegur sjóður fyrir eldri listamenn sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar og skarað fram úr á sínu sviði. Til lengri tíma litið getur slíkur sjóður tekið við hlutverki heiðurslauna listamanna, sbr. lög nr. 66/2012, en þó er slík breyting ekki lögð til í þessu frumvarpi að svo stöddu heldur verður hann nauðsynleg viðbót við heiðurslaunasjóðinn.“

Mér finnst gott og áhugavert að tekið sé á þessu í greinargerð með frumvarpinu þar sem talsverðar umræður hafa skapast hér inni um heiðurslaun listamanna sem eru veitt af Alþingi. Verð ég að taka undir ýmis sjónarmið sem komið hafa fram um að mögulega færi betur á því að hafa úthlutun þeirra mikilvægu launa í höndum annarra en pólitíkusa.

Hvað varðar þennan sjóð sem er sérgreindur fyrir kvikmyndahöfunda þá langar mig að benda á það að í ofanálag við samfélagslegt og menningarlegt mikilvægi kvikmyndalistaverka kemur hver einasta króna sem varið er til kvikmyndagerðar þrefalt til baka. Það er auðvitað allt að vinna og engu að tapa þegar kemur að stuðningi við kvikmyndagerð.

Loks vil ég ítreka það að við Píratar fögnum þessu máli. Við vonum að það verði fullfjármagnað og gerum ráð fyrir því. Að lokum vil ég segja: Listamannalaun fyrir alla, því lífið er list.