listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir afar jákvætt innlegg og uppbyggilega umræðu. Mig langar aðeins að nefna þær breytingar sem eru að eiga sér stað í skapandi greinum. Ástæða þess til að mynda að við erum að setja inn nýjan flokk fyrir kvikmyndahandritshöfunda er einfaldlega sú staðreynd — eins og við höfum verið að gera þá settum við kvikmyndastefnu til ársins 2030, sem er heildstæð nálgun á þessa atvinnugrein og listgrein — að til að ná þessum slagkrafti sem við sjáum núna og þessari aukningu, bæði hvað varðar innlend og erlend verkefni, fannst okkur alveg nauðsynlegt að setja inn þennan flokk. Hann var tímabær.
Ég vil líka nefna það sem kom fram í máli hv. þingmanns, að það hefur ekki átt sér stað endurskoðun síðan 2009. Ég verð bara að segja alveg eins og er að þetta er svo löngu tímabært. Það var erfitt að fara í þetta á Covid-tímanum. Þá stóð til að ég myndi leggja þetta frumvarp fram en sökum þess að við þurftum í raun og veru, eins og hv. þingmaður þekkir mætavel, að mynda það sem ég kallaði á sínum tíma efnahagslega loftbrú fyrir þá sem starfa við skapandi greinar þá var það ekki tímabært. En vísir að því sem við erum að gera og fjalla um í kvöld er að hluta til vinna og afrakstur vinnu sem við áttum með skapandi greinum þegar við vorum sérstaklega að einblína á unga listamenn eins og kom fram í ræðu hv. þm. Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur. Því er ánægjulegt og gaman að segja frá því að þetta er vinna sem er búin að eiga sér stað á síðustu árum og verður að viðurkennast að hún er tímabær. Það eru 15 ár síðan síðasta frumvarp um efnislega breytingu var lagt fram.