154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:41]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Já, aftur tek ég undir með hæstv. ráðherra. Ef maður á að leita skýringa á þessari þróun, þessum aukna skilningi á mikilvægi listgreina og skapandi greina, getur maður alveg ímyndað sér að í þessum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, t.d. með tilkomu gervigreindar og þróun hennar, kristallist kannski betur mikilvægi mennskunnar í öllu sem við gerum og í samfélaginu. Ég held að það muni verða enn þá skýrara á næstu árum. Í raun er mikið fagnaðarefni að þær séu alltaf að verða minni og minni og lágværari, efasemdirnar um það að listgreinar og listsköpun sé algjörlega órjúfanlegur þáttur mannlegs samfélags. Við verðum að tryggja að farvegur sé fyrir hana til að halda í mennskuna í sífellt ómanneskjulegri heimi, ef svo má segja.