154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

listamannalaun.

937. mál
[22:43]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Frú forseti. Við ræðum hér viðamiklar breytingar á lögum um listamannalaun. Umræðan hefur verið fín og mætti endurspeglast með þessum hætti í kommentakerfum. Í frumvarpinu er lagt til að fjöldi mánaðarlauna verði aukinn um 67% jafnt og þétt árin 2025–2028. Kostnaður vegna þessarar fjölgunar mánaðarlauna er metinn varanlega til hækkunar um 600 millj. kr. á ári frá og með árinu 2028. Í samanburði við önnur Evrópuríki var hlutur menningar af heildarútgjöldum hins opinbera mestur hér á landi árið 2022. Í því samhengi er vert að spyrja: Er þörf á því að auka enn frekar slík útgjöld þegar verðbólga og vaxtastig er hátt? Hér er ég ekki að tala fyrir því að skera niður í þágu menningar og lista. Hins vegar vil ég slá varnagla við því efnahagsástandi sem er uppi en auðvitað þurfum við á sama tíma að horfa til framtíðar.

Það er einmitt þess vegna sem mikilvægt er að við forgangsröðum verkefnum. Menning er mikilvæg þjóðinni. Það endurspeglast nú þegar í mjög svo umfangsmiklu stuðningskerfi við menningu og listir. Því má velta upp hvort búið sé að skoða hvernig betur megi forgangsraða fjármunum innan málaflokksins áður en frekari fjármunir verði lagðir í hann, hvernig árangur og ánægja sé metin af núverandi kerfi og hvernig megi forgangsraða í þágu ungra listamanna án þess að snarhækka framlögin.

Hvað varðar þær tillögur sem settar eru fram í frumvarpi þessu verð ég að byrja á því að segja að hér er stigið gríðarlega gott og ákveðið skref í átt að því að gera ungum listamönnum hátt undir höfði. Ég fagna því að frumvarpið gangi í takt við það. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa í langan tíma talað fyrir því að endurskoða þurfi starfslaunakerfi listamanna þannig að það sé sanngjarnt og hvetjandi, ýti undir grósku í menningarstarfi og styðji við upprennandi listafólk. Forgangsraða ætti stuðningi til listamanna með því að horfa til þess að efla nýja og unga listamenn og finna fyrirkomulag fyrir eldri listamenn sem er ekki jafn pólitískt og núgildandi fyrirkomulag. Ég vil því setja fram fyrirvara um launasjóð sem bæta á við kerfið undir nafninu Vegsemd og ætlað er að styðja við listamenn eldri en 67 ára. Nú er það svo að fyrir eru í gildi lög um heiðurslaun listamanna sem gegna sama hlutverki. Því má ég til með að slá varnagla við því að settur verði á laggirnar slíkur sjóður og hann bundinn í lög, nema með því að leysa af hendi núverandi fyrirkomulag heiðurslauna listamanna. Eins og vikið er að í greinargerðinni er gert ráð fyrir því að mögulega gæti hann leyst það fyrirkomulag af hólmi. Ég veit að það verður eflaust ekki sársaukalaust að færa fyrirkomulagið úr hendi þingsins þó að það kunni að vera skynsamlegt. Þetta verða nefndarmenn að skoða í samhengi í vinnunni sem fram undan er og ég treysti því að vel verði unnið úr.

Styrkja þarf listamenn sem vinna hart að því að koma sér á framfæri og búa til eftirspurn eftir þeirra list, öðru fremur en þá sem þegar hafa umfangsmiklar tekjur af list sinni. Þegar gæðin eru takmörkuð verður að teljast óeðlilegt að þeir listamenn sem oft eru í hópi þeirra launahæstu hér á landi fái jafnframt hvað mestan stuðning frá hinu opinbera. Þetta gerir menningarlífið á Íslandi einsleitara og hefur ekki hvetjandi áhrif á unga listamenn sem eiga erfitt með að komast inn í kerfið. Við þurfum að finna leiðir til að styðja við skapandi greinar og gera listamönnum kleift að standa undir sér. Dæmi um þetta er niðurgreiðsla skólagjalda við Listaháskóla Íslands sem tryggir aðgengi ungra listamanna að menntun án þess að þeir þurfi að skuldsetja sig um of og inn í framtíðina. Menntun er öflugasta verkfærið sem við höfum til að tryggja öllum jöfn tækifæri. Því tel ég þá aðferð og þá aðgerð gríðarlega mikilvæga fyrir eflingu skapandi greina á háskólastigi og til framtíðar mun það efla listgreinar til muna.

Virðulegi forseti. Menningin auðgar samfélagið. Hér á Íslandi vil ég að sjálfsögðu sjá menningu og listir blómstra á öllum sviðum og hér þarf einnig að auka veg skapandi greina í skólakerfinu. Ekkert samfélag er eftirsóknarvert nema menning og listir séu ríkulegur hluti af því. Ég hef þó í ræðu minni farið yfir ýmsa agnúa sem eru á málinu og fyrirkomulagi um stuðning við skapandi greinar. Ég vænti þess að farið verði vel yfir málið í nefndinni og tryggt að sú leið sem valin er við stuðning við listir sé til þess fallin að lyfta undir með þeim sem ungir og efnilegir eru til framtíðar.

Forseti. Ég verð að fá að bæta því við að ég fagna því að hæstv. ráðherra ætli að kynna til leiks efnahagslega úttekt í skýrslu á næstu dögum, eins og kom fram í andsvari áðan, um framlag skapandi greina til landsframleiðslu. Ég vona að við náum að fá kynningu og umræðu hér sem gott fóður inn í þessa vinnu og framtíðina hvað varðar það sem við ræðum í dag, sérstaklega þegar við ræðum efnahagsleg áhrif þessa frumvarps af því að ég nefndi vexti og verðbólgu áðan og viðhorf kommentakerfisins eins og kom fram í ræðum hér á undan. Þetta yrði þá væntanlega til þess fallið að varpa skýrara ljósi á stöðuna og ég vænti þess að umræðan verði þá kannski dýpri, gagnlegri og málefnalegri fyrir stöðu skapandi greina til framtíðar. En ég vona og vænti þess að við séum öll sammála um að vilja veg menningar og lista sem mestan í okkar góða samfélagi.