listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar athugasemdir og gagnlega umræðu um frumvarpið og sýn hennar á hvernig við getum nálgast þetta til að vegur skapandi greina sé sem mestur hér á landi. Mig langar kannski að nefna tvennt til að bregðast við athugasemdum og innleggi sem ég tel að skipti máli. Við höfum verið að fækka stofnunum hjá okkur, til að mynda þegar við sameinuðum þær í Tónlistarmiðstöð sem verið var að opna með formlegum hætti í dag. Þetta eru þrjár stofnanir: Inntón, ÚTÓN og Íslenska tónverkamiðstöðin. Það sama á við til að mynda það sem við erum að gera varðandi sviðslistir, við erum að nýta krafta og innviði betur. Það er liður í því að nota hverja krónu enn betur og ég er virkilega ánægð með þá nálgun sem ég mæti þegar við erum að tala um akkúrat þetta, að nýta þessa fjárfestingu betur. Ég vil taka undir með hv. þingmanni um mikilvægi þess að þessi háu skólagjöld hafi verið felld niður í Listaháskólanum. Mér fannst alltaf mjög neikvætt varðandi hinar skapandi greinar að þeir nemendur sem ákvæðu að fara í þá vegferð þyrftu að greiða mun hærri skólagjöld fyrir þetta nám. Háskólamálaráðherra á mikinn heiður skilinn fyrir að hafa tekið þetta skref og auðvitað er þetta mjög stórt framfaraskref til að auka fjölbreytileikann í skapandi greinum eins og hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir bendir hér á.