listamannalaun.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið og hennar sjónarmið á það sem ég hafði nefnt í ræðu minni. Það er gott að verið sé að horfa til þess að nýta betur einhverja yfirbyggingu í þessum málum og það verði þá kannski þverfagleg nýting á fólki og innviðum. Það er mjög gott því að við þurfum að nýta vel allar þær hendur sem við höfum í þessum efnum.
Hvað varðar menntun þá er ég alveg hjartanlega sammála hæstv. ráðherra. Þetta var gott skref og það tryggir líka að hópurinn verði ekki mjög einsleitur sem leitar í þetta nám, þ.e. hópur sem hefur efni á því að fara í listnám. Ég velti því líka fyrir mér hvernig við getum sem samfélag aukið veg skapandi greina á fyrri skólastigum, hvað hæstv. ráðherra telur vera skynsamlegt í þeim efnum, því að ég held að við þurfum líka að efla listgreinar á grunnskólastiginu og framhaldsskólastiginu. Annars tel ég að þetta hafi verið mjög gagnleg umræða í dag um þetta fyrirkomulag. Sama í hvaða nefnd þetta mál mun rata á endanum verður örugglega mjög góð og gagnleg vinna sem fer þar fram.