listamannalaun.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kemur alveg að kjarna málsins sem tengist menntun og menntun á grunnskólastigi og framhaldsskólastigi. Eitt af því sem ég tel að ríki og sveitarfélög þurfi að gera betur er að sinna tónlistarnámi, sem hefur verið talsverð áskorun hjá mörgum af okkar tónlistarskólum. Ég fullyrði að það starf sem ég þekki mætavel, því miður ekki sjálf en í gegnum börnin mín, er algjörlega framúrskarandi. Eitt af því sem einkennir íslenskt tónlistarlíf er að það hefur verið lögð svo mikil alúð og metnaður í þessa tónlistarskóla og aðgengi að þeim hefur verið tiltölulega gott, en kostnaður er auðvitað talsverður. Auðvitað var það mjög jákvætt þegar frístundastyrkurinn var kynntur á sínum tíma en ég myndi segja að það næsta fyrir mig sem menningarmálaráðherra, ásamt menntamálaráðherra, væri að taka frekari skref eins og hv. þingmaður nefnir til að styðja við til að mynda tónlistarkennslu í landinu, af því að það er grunnurinn að öllu. Við getum verið með mjög metnaðarfulla umgjörð en ef það er engin endurnýjun og börn hafa ekki gott aðgengi þá drögumst við aftur úr. Þannig að þessar áherslur sem koma fram hjá hv. þingmanni eru hárréttar og ég tek þær til mín.