listamannalaun.
Forseti. Ég ætla bara stuttlega að þakka hæstv. ráðherra fyrir síðara andsvar og samtalið. Þetta er bara mjög gott og ég hvet hæstv. ráðherra líka til að hafa alltaf í huga börn sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Það er mikilvægt að við höldum utan um þau og aðgengi þeirra að skapandi greinum. Í því samhengi, af því að það var aðeins rætt um gervigreindina, þá eru ýmis tækifæri og kostir í þeim tækniframförum sem eru að verða. Þó eru líka talsverðar áskoranir sem mæta listgreinum, sem lúta að gervigreindinni og höfundarétti og öllu slíku, sem við þurfum klárlega að hafa í huga í mjög náinni framtíð. Ég þakka fyrir umræðuna.