154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

skráð trúfélög o.fl.

903. mál
[15:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er ágætisviðbót hérna varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem almennt gildir einmitt um öll félög. Mér finnst mjög merkilegt að við séum að vesenast með þessi trú- og lífsskoðunarfélög sér á báti hvað það varðar. Getum við ekki farið að hætta að skrá þetta almennt séð, leyft þessum félögum að innheimta sín félagsgjöld og ríkið hætti að halda skrá um hver sé í hvaða lífsskoðunarfélagi eða trúfélagi?