154. löggjafarþing — 102. fundur, 24. apr. 2024.
skráð trúfélög o.fl.
903. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að ég fari rétt með að það þurfi ekki að gera þessa skráningu heldur er hún eingöngu til þess að félögin fái þau gjöld sem hér eru lögð til. Þess vegna er það þeim til hægðarauka við að fá gjöldin til sín að þessi skrá sé haldin. En það þarf ekki að gera það.