154. löggjafarþing — 102. fundur, 24. apr. 2024.
skráð trúfélög o.fl.
903. mál
Forseti. Nei, fólk getur vissulega verið skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga o.s.frv. en spurningin snerist um það hvort við getum ekki bara leyft þessum félögum að innheimta gjöldin sjálf, að ríkið geri það ekki og úthluti þeim þessum blessuðu gjöldum og geti þar af leiðandi hætt því að halda úti þessari skrá til að vita til hvaða trú- og lífsskoðunarfélaga þurfi endilega að borga.