skráð trúfélög o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að hv. þingmaður sé kominn hér í mjög pólitíska umræðu sem varðar kannski ekki beint þetta frumvarp heldur er tilefni til annarrar umræðu og þá framlagningu á annars konar frumvarpi en hér um ræðir. Það þyrfti þá að endurskoða lög um sóknargjöld. Ég held að hv. þingmaður þekki mig það vel og viti það í gegnum störf mín er ég var formaður efnahags- og viðskiptanefndar að ég tel t.d. að mörg trú- og lífsskoðunarfélög sinni mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Áratugahefð, mjög löng hefð er fyrir því hvernig það fyrirkomulag er eða er viðhaft. Ég get samt sem áður upplýst hv. þingmann um að ég hef áhuga á því að endurskoða þau lög og fara yfir það en ég hef ekki sett þá vinnu af stað með formlegum hætti.