skráð trúfélög o.fl.
Forseti. Jú, í andsvarinu mínu áðan var ég að spyrja spurninga, vissulega á ákveðinn hátt pólitískra spurninga, um það hvort við eigum ekki að leggja niður þetta fyrirkomulag sóknargjalda og utanumhald ríkisins á því hvaða einstaklingur er skráður í hvaða trúfélag eða lífsskoðunarfélag og leyfa þessum trú- og lífsskoðunarfélögum að innheimta sín gjöld, nákvæmlega sömu gjöld. Við getum farið í tekjuskattslækkun á móti til þess einmitt að losa ríkið við þessa innheimtukröfu sem er gerð til handa trú- og lífsskoðunarfélögum. Það er hinn möguleikinn í þessu frumvarpi, að í staðinn fyrir að útfæra allt sem er í rauninni í lögum varðandi almenn félög og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka væri það fellt til hliðar og þessi almennu lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem ná meira að segja yfir húsfélög, látin ná yfir lífsskoðunarfélög og trúfélög. Þannig að hin leiðin er að í staðinn fyrir að vera með eitthvert frumvarp sem nær sérstaklega yfir lífsskoðunarfélög og trúfélög að klippa það út, klippa burt sérstöðu þessara félaga gagnvart ríkinu af því að ríkið innheimtir sóknargjöldin fyrir þau, svo við förum nú ekki út í hinn partinn varðandi þessa þjóðkirkju okkar og hvernig kirkjujarðasamkomulagið er þar á bak við. Það er síðan enn annað mál. En alla vega að það sama gildi um þessi félagasamtök, sem trúfélög- og lífsskoðunarfélög eru í rauninni undir, og um húsfélög varðandi peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ég held að það þurfi að svara þessari pólitísku spurningu fyrr en síðar því að hún er pólitísk á þann hátt að með því að gera trú- og lífsskoðunarfélög pólitísk er þetta orðin pólitísk spurning, sem hún á ekki að vera. Það er kannski frekar lykilatriðið. Við eigum ekki að þurfa að hafa pólitíska umfjöllun um trúfélög og lífsskoðunarfélög. Það er bara þeirra frelsi í rauninni að iðka sína trú eða sínar skoðanir óháð því að ríkið haldi einhvers konar lista yfir það hver sé skráður í hvaða félag. Ég tel að það sé vandinn í þessu öllu, þ.e. þessi gagnagrunnur þar sem ríkið veit hver hefur hvaða skoðun hvað lífsskoðun eða trú varðar. Ég hvet því hæstv. ráðherra, fyrst hún lýsti yfir skoðun sinni á að endurskoða þetta fyrirkomulag, til að drífa bara í því, klippa á þennan naflastreng og veita þessum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum það frelsi sem þau gætu öðlast án aðkomu ríkisins.