154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

skráð trúfélög o.fl.

903. mál
[16:01]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að í þessu máli er varðar lífsskoðunar- og trúfélög náum við hv. þingmaður seint sameiginlegum skilningi. Það vita allir sem mig þekkja að ég er kirkjunnar kona og tel til að mynda að þjóðkirkjan sem og önnur lífsskoðunarfélög hér á landi gegni mikilvægu hlutverki og sinni mikilvægri þjónustu. En óháð því hvernig trú- og lífsskoðunarfélög eru skráð erum við hér að tala um lög um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og það vantar upp á að formgera þetta með betri hætti. Að mati ríkislögreglustjóra er þarna áhættuþáttur er kemur að peningaþvætti og hryðjuverkastarfsemi. Því tel ég mjög mikilvægt að þessi lög verði samþykkt. Eins og ég sagði hér áðan í fyrra svari mínu hef ég áhuga á því að taka lög um sóknargjöld til endurskoðunar en sú vinna er ekki hafin.