skráð trúfélög o.fl.
Forseti. Ég átta mig fullkomlega á því að við þurfum á þessu að halda ef við ætlum að hafa þetta núverandi fyrirkomulag, að ríkið haldi gagnagrunn yfir fólk sem er skráð í lífsskoðunar- og trúfélög. En við skulum hafa það algerlega á hreinu að það þarf ekki aðkomu ríkisins til þess að trúfélög eða lífsskoðunarfélög sinni mikilvægri þjónustu. Það kemur ríkinu ekkert við af því að eina aðkoma ríkisins er í raun að innheimta sóknargjöldin og millifæra þau til þessara trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Það er aðkoma ríkisins og breytir hún engu um þjónustu þessara félaga, ekki neinu. Ef þau væru að innheimta þessi gjöld sjálf án aðkomu ríkisins gætu þau jafnvel gert það enn þá betur ef eitthvað er. Ég vil því ekki setja þetta tvennt saman. Það að einhver sé kirkjunnar maður eða kona eða eitthvað því um líkt og að þessi félög sinni mikilvægri þjónustu kemur því ekkert við hvort ríkið innheimti sóknargjöld eða ekki.