154. löggjafarþing — 102. fundur, 24. apr. 2024.
skráð trúfélög o.fl.
903. mál
Virðulegi forseti. Nei, það er alveg rétt að það kemur því ekkert við. Hins vegar hafa aðilar gert með sér samninga og ríkið hefur tekið að sér að innheimta gjöld fyrir trú- og lífsskoðunarfélög. Til að geta skilað því fé til baka þarf að eiga sér stað einhver skráning. Eins og hér hefur komið fram þarf að breyta öðrum lögum ef við ætlum að sammælast um að þetta fyrirkomulag sé ekki gott og ekki til hagsbóta fyrir þjóðina.