skráð trúfélög o.fl.
Forseti. Grunnþjónusta eða mikilvæg þjónusta, allt í lagi. En óháð því er íslenska ríkið samt að greiða 7 milljarða á ári til þjóðkirkjunnar. Lög um opinber fjármál eru mjög skýr um hvað það þýðir að greiða opinbert fjármagn til einhverra aðila. Hversu mikilvægir sem þeir eru þarf það að vera útskýrt til hvers þeir eru að fá fjármagnið. Þess vegna erum við einmitt með þessar aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, við þurfum að vita hvernig farið er með peningana. Ég er ekki að tengja það við hryðjuverk hvað þetta varðar heldur bara þessa almenna þumalputtareglu um, með leyfi forseta, „strings attached“ eins og sagt er um opinbert fé, þ.e. við þurfum að vita til hvers opinbert fjármagn fer. Svo set ég spurningarmerki við það almennt að það sé svo mikilvægt að ríkið styðji við þessa aðila. Er eitthvað að fara að breytast? Myndi presturinn haga sér einhvern veginn öðruvísi ef ríkið væri ekki að styðja við þessa starfsemi? Er þetta ekki gert af hugsjón? Ef ríkið hættir að innheimta félagsgjöldin, hvernig breytist starfsemi þessara trú- og lífsskoðunarfélaga allt í einu? Þau eru ekki í þessu af einhverri gróðahugsjón eða einhverju svoleiðis, þau eru í þessu af hugsjón eins og velflest félagasamtök. Ég skil því ekki af hverju aðkoma ríkisins að þessu er nauðsynleg. Bara einföld spurning hvað það varðar.