skráð trúfélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Við erum auðvitað komin í umræðu sem er kannski ekki beint tengd þessu frumvarpi en það gerist reyndar gjarnan hér í sölum Alþingis og oft verða jafnvel skemmtilegustu umræðurnar úr því. Hv. þingmaður spurði hér áðan hvort mér fyndist eðlilegt að ríkið væri með skrá yfir trú- og lífsskoðunarfélög íbúa. Mér finnst það alveg áhugaverð spurning að velta fyrir sér en ef við erum að innheimta félagsgjöld fyrir þau þá augljóslega þurfum við að hafa slíka skrá, það held ég að segi sig sjálft. Hvernig eigum við annars að greiða ef við erum á annað borð að innheimta félagsgjöldin? Þá hljótum við að þurfa að vita í hvaða trúfélagi fólk er þannig að hægt sé að fylgja því eftir.
En hv. þingmaður kemur líka inn á annars konar samkomulag við þjóðkirkjuna og greiðslur sem hún fær frá ríkinu fyrir þá þjónustu sem hún á að veita. Ég hvet hv. þingmann áfram í þeirri vinnu. Hvað varðar fjármálaáætlun, fjárlög og annað er auðvitað mjög mikilvægt að hægt sé að rekja í hvað fé fer. Ég efast ekki um að sú þjónusta sem þjóðkirkjan veitir sé vel þess virði en það þarf sannarlega að sýna fram á það. Ef við erum aftur á móti að tala um trúfrelsi — ég og hv. þingmaður virtumst vera sammála um að við værum í rauninni að innheimta félagsgjöld en hv. þingmaður er samt að vísa í einhvers konar styrki — þá eiginlega veit ég ekki hvernig við ættum að ná utan um verkefnið öðruvísi nema við segjum að þetta skipti ríkið engu máli, að þetta séu bara frjáls félagasamtök sem fólk greiðir í ef það vill eða ekki. Ef það er það sem hv. þingmaður er í rauninni að leggja til þá hef ég skilning á því en ég er ekki sammála. Það er bara eins og það er. Ég held að þessi félög skipti miklu máli, eins og ég sagði áðan, fyrir þjóðina og fyrir menningu okkar. Þar af leiðandi held ég að þetta fyrirkomulag sem við erum með sé best til þess fallið. Aftur á móti ítreka ég það sem ég sagði áðan, (Forseti hringir.) að ég tel fulla ástæðu til að endurskoða lög um sóknargjöld svo það liggi fyrir með einhverjum fyrirvara hver þau gjöld eru sem ríkið innheimtir fyrir trúfélög.